Brennuleyfi á Kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði vegna brennuleyfis og flugeldasýningar til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65 á Selfossi:
- Rangárþing eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur, vegna brennu og flugeldasýningar 31. ágúst nk. á lóð bak við LAVA Centre, Hvolsvelli – sjá slóð hér
Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 27. ágúst næstkomandi.