87. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands, 21. júní 2006
87. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands haldinn miðvikudaginn 21. júní að Austurvegi 56, Selfossi.
Mætt: Jón Ó. Vilhjálmsson, Gunnar Þorkelsson, Guðmundur Elíasson, Margrét Einarsdóttir og Elsa Ingjaldsdóttir. Bergur E. Ágústsson var í símasambandi.
Mætt: Jón Ó. Vilhjálmsson, Gunnar Þorkelsson, Guðmundur Elíasson, Margrét Einarsdóttir og Elsa Ingjaldsdóttir. Bergur E. Ágústsson var í símasambandi.
Jón Ó. Vilhjálmsson, Gunnar Þorkelsson, Guðmundur Elíasson, Margrét Einarsdóttir og Elsa Ingjaldsdóttir. Bergur E. Ágústsson var í símasambandi. Elín Björg Jónsdóttir boðaði forföll.
1) Starfsleyfi til kynningar og afgreiðslu
a) Starfsleyfi
Nr.
|
Nafn
|
Póstfang
|
Starfsleyfi
|
1 |
Farfuglaheimilið Hvoli |
880 Kirkjubæjarkl. |
Br. á starfsemi |
2 |
Hstefánsson ehf |
900 Vestmannaeyjar |
Eigendaskipti |
3 |
Árborg v/Þjónustumiðst.aldraðra |
800 Selfoss |
Endurnýjun |
4 |
Kaffi-kró Guðmunda ehf. |
900 Vestmannaeyjar |
Br. á starfsemi |
5 |
Smáratún ehf. Ferðaþjónusta |
861 Hvolsvöllur |
Endurnýjun |
6 |
Olíuversl.Ísl.v/Bensínst.Hellu |
850 Hella |
Endurnýjun |
7 |
Skátafélagið Faxi v/tjaldstæði í Herjólfsdal |
900 Vestmannaeyjar |
Endurnýjun |
8 |
Skátaheimilið |
900 Vestmannaeyjar |
Br. á starfsemi |
9 |
Flugleiðahótel v/Hótel Edda Skógum og sundlaug |
861 Hvolsvöllur |
Endurnýjun |
10 |
Olíufélagið hf – Básaskersbryggju |
900 Vestmannaeyjar |
Endurnýjun |
11 |
Fancy snyrtistofa |
900 Vestmannaeyjar |
Endurnýjun |
12 |
Ferðaþjónusta Garðsauka -Jón Logi Þorsteinsson |
861 Hvolsvöllur |
Ný starfsemi |
13 |
Gistiheimilið Geysir |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
14 |
Hársnyrtistofan Ópus – Lokkur ehf |
810 Hveragerði |
Endurnýjun |
15 |
Ráðhúskaffi / Erta ehf |
815 Þorlákshöfn |
Eigendaskipti |
16 |
Sundlaugin Ljósaf. – Landmenn ehf |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
17 |
Vatnsveita Austurdals |
801 Selfoss |
Ný starfsemi |
18 |
Framrás ehf. Bílaverkstæði |
870 Vík |
Endurnýjun |
19 |
Suðurlandsvídeó hf. |
800 Selfoss |
Endurnýjun |
20 |
Bílverk ehf |
900 Vestmannaeyjar |
Endurnýjun |
21 |
Selvogsgata ehf v/pylsuvagns |
815 Þorlákshöfn |
Br. á starfsemi |
22 |
Flúðasveppir |
845 Flúðum |
Eigendaskipti |
23 |
Fiskmark |
815 Þorlákshöfn |
Endurnýjun |
24 |
Fagradalsbleikja |
871 Vík |
Endurnýjun |
Öll starfsleyfin samþykkt nema nr. 23 sem er frestað og framkvæmdastjóra falið að afla umsagnar sveitarfélagsins vegna endurnýjunar.
b) Tóbakssöluleyfi
Nr.
|
Nafn
|
Póstfang
|
|
1 |
Hstefánsson ehf |
900 Vestmannaeyjar |
Nýtt leyfi |
2 |
Olíuverslun Íslands hf |
850 Hella |
Endurnýjun |
3 |
Ráðhúskaffi – Erta ehf |
815 Þorlákshöfn |
Eigendaskipti |
Lögð fram til upplýsinga. c) Önnur starfsleyfi.
i) Lýsi v/hausaþurrkunar
Lagt fram bréf frá sveitarfélaginu Ölfusi dags. 16. júní sl. þar sem fram kemur að bæjarstjórn Ölfus leggst gegn því að starfsleyfi fyrir Lýsi v/hausaþurrkunar verði endurnýjað.
Eftirfarandi bókun gerð:
”Samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir tekur Heilbrigðisnefnd Suðurlands ákvarðanir varðandi þvingunaraðgerðir fyrirtækja. Því mun Heilbrigðisnefnd Suðurlands taka ákvörðun um endurnýjun starfsleyfis út frá settum starfsleyfisskilyrðum og mögulegum brotum á þeim. Er framkvæmdastjóra falið að vinna að undirbúningi þvingunaraðgerða og leggja fram tímasett ferli fyrir næsta fund nefndarinnar." ii) Reykjagarður v/Ásmundarstaða
Lagt fram bréf Reykjagarðs dags. 1. júní 2006 ásamt fylgiskjölum (Greinargerð vegna fyrirhugaðarar stækkunar á starfsemi Reykjagarðs, Ásmundarstöðum, samstarfssamningur Landgræðslunnar og Reykjagarðs, samningur við Flúðasveppi og samningur við Gámastöðina). Framlögð gögn eru svar við bókun nefndarinnar frá síðasta fundi. Ekki hafa borist svör frá Hérðasdýralækni/landbúnaðarstofnun vegna beiðni um umsögn á notkun á fuglaskarni til áburðargjafar.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands telur, samkvæmt innsendum gögnum, að farvegur til förgunar búfjarskarns sé tryggður og felur starfsmönnum að ganga frá tímabundnu starfsleyfi og starfsleyfisskilyrðum vegna starfseminnar þar til svar Landbúnaðarstofnunar vegna ofannefndrar fyrirspurnar hefur borist. iii) Matfugl og Jón Ögmundsson, Hjallakróki.
Vísað í afgreiðslu í lið ii) og starfsmönnum falið að ganga frá starfsleyfunum á sama hátt. d) Samræmd starfsleyfisskilyrði UST og HES. i) Fyrir stórar námur
ii) Fyrir stórar spennistöðvar
iii) Fyrir smurstöðvar
iv) Fyrir sjálfvirkar bón- og bílaþvottastöðvar
v) Fyrir ryðvarnarverkstæði
vi) Fyrir réttingaverkstæði og skyldan rekstur
vii) Fyrir niðurrif á bifreiðum og þungavinnuvélum
viii) Fyrir móttökustöðvar fyrir ökutæki sem áformað er að farga
ix) Um meðferð og vinnslu mjólkur
x) Fyrir loðdýrabú
xi) Fyrir hjólbarðaverkstæði
xii) Fyrir flugeldasýningu
xiii) Fyrir efnistöku
xiv) Fyrir tímabundið starfselyfi vegna brennu
xv) Fyrir bónstöðvar og bílaleigur
xvi) Fyrir bílaparatsölur og skyldan rekstur
xvii) Fyrir almenn bílaverkstæði og skyldan rekstur
xviii) Fyrir bifreiðasprautun
xix) Fyrir fiskeldi í sjó
xx) Fyrir fiskeldi á landi
Heilbrigðisnefnd Suðurlands samþykkir notkun ofangreindra starfsleyfisskilyrða. 2) Samþykktir og gjaldskrár sveitarfélaga.
a) Samþykkt um hundahald í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Samþykktin samþykkt án athugasemda. b) Gjaldskrá vegna hundahalds í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Gjaldskráin samþykkt án athugasemda. 3) Skipulagsmál.
a) Úlfljótsvatn, Grímsnes- og Grafningshreppi.
Lögð fram drög að umsögn HES vegna málsins sbr. bréf Skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, dags. 30. maí sl. Ennfremur lögð fram innsend frekari gögn frá Línuhönnun (Skýrsla verkfræðistofunar Vatnaskila dags. 8. júní sl., afrit af bréfi OR til Grímsnes- og Grafningshrepps dags. 14. júní sl. og afrit af skýrslu Gavia dags. 23. maí sl.)
Heilbrigðisnefnd Suðurlands felur starfsmönnum að svara erindi Skipulagsfulltrúa. b) Mjóanes við Þingvallavatn.
Lagt fram til upplýsinga deiliskipulag í landi Mjóaness við Þingvallavatn, Bláskógabyggð. c) Hraunkot, Grímsnes- og Grafningshreppi.
Til upplýsinga lagt fram svarbréf Heilbrigðiseftirlits Suðurlands dags. 9. júní sl. varðandi breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps ofl.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands leggst gegn tillögunni og telur öryggi vatnsbóls og vatnsverndarsvæðis ekki nægilegt. d) Hrunamannahreppur, breyting á aðalskipulagi.
Til upplýsinga lögð fram umsögn HES varðandi breytinguna. Í tillöguna vantar að skilgreina vatnsverndarsvæði við ný vatnsból í Hrunamannahreppi. 4) Gangur eftirlits.
a) Rekstraryfirlit.
Lagt fram rekstaryfirlit HES frá janúar til júní 2006. Allir rekstrarliðir samkvæmt áætlun. b) Reglubundið eftirlit og málaskrá
Elsa Ingjaldsdóttir greindi frá gangi reglubundins eftirlits og málaskrá starfsmanna. Hún greindi frá því að bílar eftirlitsins væru of fáir til að geta skipulagt starfið á bestan hátt. Heilbrigðisnefnd telur nauðsynlegt að bílaskortur hamli ekki starfsemi og felur framkvæmdstjóra að kanna frekari rekstarleigu bifreiða enda er núverandi rekstarleigu samningur að renna út og nýtt skipulag á rekstri HES.
c) Þvingunaraðgerðir
Til upplýsinga lagt fram bréf Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, dags. 14. júní sl. ásamt svarbréfi Kaupás dags. 16. júní sl. 5) Annað.
a) Uppfærsla á heimasíðu og gögn á vefinn.
Elsa Ingjaldsdóttir greindi frá fyrirhugaðri uppfærslu á vef HES og tilboði vegna þess. Lagði einnig fram til upplýsinga fræðsluefni um leyfisveitingar og ferðasalerni sem setja á inn á heimasíðu. b) Umhverfishreinsun, Lambaskörð.
Lagt fram til upplýsinga bréf HES, dags. 9. júní sl. vegna krafna um umhverfishreinsun í Lambaskörðum, Höfðabrekkuafrétti. c) Dreifibréf til skipulagsfulltrúa.
Lagt fram til upplýsinga dreifibréf HES, dags. 13. júní sl. til sveitarfélaga/skipulagsfulltrúa varðandi umsagnaferli HES í skipulagsmálum. d) Undanþága v/sorpbrennslustöðvar Vm.
Til upplýsinga lagt fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, dags. 6. júní sl. til Umhverfisráðuneytis, varðandi undanþágubeiðni Sorpeyðinarstöðvar Vestmannaeyja frá ákvæðum í starfsleyfi. e) Starfsmannamál.
Samþykkt að bíða eftir kjarasamningi frá stéttarfélaginu. Jóni og Elínu Björgu falið að ganga frá samningi við framkvæmdastjóra á grundvelli hans.
Elsa Ingjaldsdóttir vék af fundi undir þessum lið. f) Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 7. september 2006.
Elsa Ingjaldsdóttir upplýsti um líklegt fyrirkomulag fundarins. Almennar umræður urðu um fyrirkomulag fyrsta aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14.00.
Næsti reglulegi fundur ákveðin 3ja miðvikudag í ágúst.
Jón Ó. Vilhjálmsson Margrét Einarsdóttir Guðmundur Elíasson
Bergur E. Ágústsson Pétur Skarphéðinsson Gunnar Þorkelsson
(símleiðis)
Elsa Ingjaldsdóttir