46. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands, 17. september 2002
46. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands haldinn þriðjudaginn 17. september 2002, kl. 14.00 að Austurvegi 56, Selfossi.
Mætt: Jón Vilhjálmsson, Andrés Sigmundsson, Guðmundur Elíasson, Gunnar Þorkelsson, Heimir Hafsteinsson, Þórhildur H. Þorleifsdóttir.
Ennfremur Pétur Skarphéðinsson og Elsa Ingjaldsdóttir.
Pétur Skarphéðinsson var kosin samhljóða fundarstjóri fram yfir formannskjör.
Voru fundarmönnum ljós ákvæði sveitarstjórnarlaga er varða fyrsta fund nýrrar nefndar.
1) Kosning formanns og varaformanns.
Jón Vilhjálmsson og Heimir Hafsteinsson gáfu báðir kost á sér til formennsku. Gunnar benti á að störf nefndarinnar ættu að vera ópólitísk og fagleg.
Jón Vilhjálmsson kjörinn formaður nefndarinnar með 4 atkvæðum af 6.
Einn seðill auður.
Heimir Hafsteinsson kosinn varaformaður nefndarinnar með 4 atkvæðum, Þórhildur H. Þorleifsdóttir eitt atkvæði og einn seðill auður.
Formaður nefndarinnar tók við fundarstjórn.
2) Starfsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2001.
Elsa Ingjaldsdóttir fór yfir árskýrsluna og gerði grein fyrir starfi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands auk þess að afhenda nýrri nefnd almennar upplýsingar um starfið.
3) Yfirlit eftirlits.
Elsa Ingjaldsdóttir gerði grein fyrir gangi reglubundins eftirlits og fór yfir stöðuna.
4) Starfsleyfi til kynningar og afgreiðslu.
a) Starfsleyfi.
1 |
Suðurlandssól |
800 Selfss |
eig.skipti |
2 |
Edinborg, gistiheimili |
861 Hvolsvöllur |
Endurnýjun |
3 |
Réttin, Úthlíð |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
4 |
Ljósafosslaug |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
5 |
Sundlaugin Öndverðarnesi |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
6 |
Reykhúsið Útey |
840 Laugarvatn |
Endurnýjun |
7 |
Vinnustofan Gagnheiði |
800 Selfss |
Endurnýjun |
8 |
Leikskólinn Kátaborg |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
9 |
Menntaskólinn Laugarvatni |
840 Laugarvatn |
Endurnýjun |
10 |
Tónlistarskóli Árnesinga |
800 Selfss |
Endurnýjun |
11 |
Íþróttahúsið v/Sólvelli |
800 Selfss |
Endurnýjun |
12 |
Íþróttasalurinn Gagnheiði |
800 Selfss |
Endurnýjun |
13 |
Íþróttahúsið Stokkseyri |
825 Stokkseyri |
Endurnýjun |
14 |
Staður |
820 Eyrarbakki |
Endurnýjun |
15 |
Sundlaug Stokkseyrar |
825 Stokkseyri |
Endurnýjun |
16 |
Sundhöll Selfoss |
800 Selfss |
Endurnýjun |
17 |
Kirkjubæjarskóli Síðu |
880 Skaftárhr. |
Endurnýjun |
18 |
Þingborg v/félagsh og leiksk. |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
19 |
Grunnskólinn |
810 Hveragerði |
Endurnýjun |
20 |
Skálholtsskóli |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
21 |
Gaulverjaskóli |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
22 |
Laugalandsskóli |
851 Hella |
Endurnýjun |
23 |
Félagsheimilið Þjórsárveri |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
24 |
Snyrtistofa Ólafar |
800 Selfss |
Endurnýjun |
25 |
Hvolsskóli |
860 Hvolsvöllur |
Endurnýjun |
26 |
Heimaland, félagsheimili |
861 Hvolsvöllur |
Endurnýjun |
27 |
Set ehf. |
800 Selfss |
Endurnýjun |
28 |
Húsasmiðjan |
900 Vestm.eyjum |
eig.skipti |
29 |
Allt í hund og kött, gælud.versl. |
800 Selfss |
eig.skipti |
30 |
Leikskólinn Lind |
840 Laugarvatn |
Endurnýjun |
31 |
Leikskólinn Laugalandi |
851 Hella |
Endurnýjun |
32 |
Íþróttamiðstöðin Reykholti |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
33 |
Leikskólinn Ólátagarður |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
34 |
Gnúpverjaskóli |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
35 |
Móar hf. v/Ásgautsstaða |
825 Stokkseyri |
Endurnýjun |
36 |
Móar hf. v/Þórustaða |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
37 |
Móar hf v/Miðfells |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
38 |
Móar hf v/Þrándarlundar |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
39 |
Ferðaþjónustan Völlum |
871 Vík |
ný starfsemi |
40 |
Pizzahöllin |
815 Þorlákshöfn |
ný starfsemi |
41 |
Steikhús Selfoss |
800 Selfss |
ný starfsemi |
42 |
Versalir – samkomusalir |
815 Þorlákshöfn |
ný starfsemi |
43 |
Suðurverk v/vinnubúða Þórisósi |
201 Kópavogur |
Ný starfsemi |
44 |
Kjúklingabúið Vor, Vatnsenda |
801 Selfoss |
ný starfsemi |
45 |
Þórustaðir svínabú |
801 Selfoss |
ný starfsemi |
Starfsleyfin samþykkt án athugasemda nema st.l. nr. 40 og 41, afgreidd með fyrirvara um jákvæða úttekt heilbrigðisfulltrúa.
b) Tóbakssöluleyfi.
1 |
Steikhús Selfoss |
800 Selfoss |
Nýtt |
Samþykkt með fyrirvara sbr. starfsleyfi nr. 41.
5) Framtíðarfyrirkomulag heilbrigðiseftirlits í Vestmannaeyjum.
Lagt fram á fundi vinnuskjal frá fundi 9. september í Vestmannaeyjum með Sjöfn Sigurgísladóttur, forstjóra RF, Heiðu Pálmadóttur, RF, Arnari Sigmundssyni f.h. sjálfseignarstofnunar RF í Vestmannaeyjum, Heimi Hafsteinssyni f.h. Heilbrigðisnefndar Suðurlands og Elsu Ingjaldsd. f.h. Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Heimir Hafsteinsson gerði grein fyrir fundinum og upplýsti fundarmenn um stöðu mála.
Almennar umræður urðu um málið.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands samþykkir að vinna að samkomulaginu frekar m.t.t. framlengingar samnings til júníloka 2003, en jafnframt verði hugað að á tímabilinu heppilegra fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits í Vestmannaeyjum.
Formanni og framkvæmdastjóra falið að leggja fram drög að nýju samkomulagi varðandi Heilbrigðiseftirlit í Vestmannaeyjum fyrir næsta fund nefndarinnar.
6) Mál til upplýsinga og kynningar.
a) Bókanir frá aðalfundi SASS er varða Heilbrigðisnefnd/Heilbrigðiseftirlit Suðurlands.
Lagt fram til upplýsinga.
Nokkrar umræður urðu um framtíðarskipan matvælaeftirlits í landinu.
b) Endurnýjun á starfsleyfi Sorpstöðvar Suðurlands.
Lagt fram til upplýsinga.
c) Úrskurður Skipulagstofnunar um umhverfismat vegan vikurnáms á Mýrdalssandi.
Lagt fram til upplýsinga.
d) Fundur Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða 27. september nk.
Til upplýsinga.
7) Önnur mál.
i) Skipun fulltrúa Heilbrigðisnefndar Suðurlands í vinnuhóp á vegum SASS um endurskoðun á hlutverki þess. Ákveðið að Gunnar Þorkelsson verði fulltrúi Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
ii) Ákveðin fundartími nefndarinnar er þriðji miðvikudagur í mánuði
kl. 14.00
iii) Heimir Hafsteinsson lagði fram eftirfarandi bókun:
" Um leið og ég vil þakka þeim nefndarmönnum sem starfað hafa með mér sl. 2 ár í Heilbrigðisnefnd Suðurlands gott og árangursríkt samstarf, vil ég í leiðinni tilkynna að ég hef ákveðið að segja mig úr Heilbrigðisnefnd Suðurlands að þessum fundi loknum. Ástæða þess er sú fyrst og fremst að ég hlýt að túlka úrslit formannskosninga í byrjun fundar sem beint vantraust á mig og mína vinnu sem formanns nefndarinnar sl. tvö ár. Ég ætla að hinsvegar að vona að með þessum miklu breytingum á skipan nefndarmanna ásamt einnig mikilli andstöðu framkvæmdastjóra SASS við nauðsynlegar skipulagsbreytingar á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, sé ekki stefnt í hættu þeirri miklu og góðu vinnu er verið hefur í gangi síðan árið 1999 við endurskipulagningu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands."
Heilbrigðisnefnd Suðurlands þakkar Heimi góð og farsæl störf í nefndinni.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15.50.
Andrés Sigmundsson Guðmundur Elíasson
Gunnar Þorkelsson Heimir Hafsteinsson
Þórhildur H. Þorleifsdóttir Pétur Skarphéðinsson
Elsa Ingjaldsdóttir Jón Vilhjálmsson