153. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands
haldinn föstudaginn 22. nóvember 2013, kl. 13.00 að Austurvegi 65, Selfossi.
Mætt: Gunnar Þorkelsson formaður, Svanborg Egilsdóttir, Unnsteinn Eggertsson, Valur Bogason (í síma), Páll Stefánsson, Pétur Skarphéðinsson, Oddur Árnason og Elsa Ingjaldsdóttir.
Formaður bauð fundarmenn velkomna og setti fund. Gengið var til dagskrár.
1. Starfsleyfi til kynningar og afgreiðslu.
a) Starfsleyfi – Lögð fram afgreiðsla af verkfundum HES, 1. og 15. nóvember sl.
Umsóknir, áhættumat og tillaga að afgreiðslu og gildistíma starfsleyfis
|
Heiti | Ástæða umsóknar |
Pnr. |
Borg | Isat flokkun | Áhættumat | Gildistími |
1 |
Café María | Eigendask.Breyt |
900 |
Vestm |
Matsölustaðir, miðlungs, 50 – 100 sæti |
12ár | |
2 |
Safnahús Vestmannaeyja | Ný starfsemi |
900 |
Vestm |
Samkomusalir án eldhúss eða eingöngu uppþvottur |
lítil | 12ár |
3 |
Sæheimar | Ný starfsemi |
900 |
Vestm |
Samkomusalir án eldhúss eða eingöngu uppþvottur |
lítil | 12ár |
4 |
Fitjamenn ehf | Ný starfsemi |
851 |
Hella |
Fjallaskálar og farfuglaheimili heilsársnotkun |
lítil | 12 ár |
5 |
Byggðasafn Árnesinga | Ný starfsemi |
820 |
Eyrarbakki |
Samkomusalir án eldhúss eða eingöngu uppþvottur |
lítil | 12 ár |
6 |
Skíðaskálinn í Hveradölum | Eigandaskipti |
816 |
Þorlákshöfn |
Matsölustaðir, stórir,>100 sæti |
lítil | 12 ár |
7 |
Hótel Hella | Eigendaskipti | 850 | Hella |
Hótel/gistiheimili með veitingasölu, miðlungs 50 – 100 gestir |
lítil | 12 ár |
8 |
V18 slf (leiga íbúðar í Vík) | Ný starfsemi | 870 | Vík |
Útleiga stakra sumarhúsa/íbúðarhúsnæðis |
Lítil | 12 ár |
9 |
Bolaöldur ehf. v/efnistöku | Nýtt starfsleyfi | 815 | Ölfus |
Malar- og sandnám, steinmölun og framleiðsla á ofaníburði og fyllingarefnum |
31 stig – miðlungs, A II | 12 ár |
10 |
Landsvirkjun v/Búðarháls | Nýtt starfsleyfi | 851 | Ásahreppi |
Virkjun |
ath. kemur síðar |
Starfsleyfisumsóknir nr. 1-8 samþykktar í samræmi við áhættumat.
Samþykkt að auglýsa framlögð starfsleyfisskilyrði fyrir umsóknir nr. 9 og 10 í samræmi við reglur þar að lútandi.
b) Umsagnir til sýslumanna.
Til kynningar afgreiðsla af verkfundum HES, 1. og 15. nóvember sl.
c) Umsagnir vegna skipulagsmála.
Til kynningar afgreiðsla af verkfundum HES, 1. og 15. nóvember sl.
2. Yfirlit.
a) Gangur eftirlits og málaskrá.
Lagt fram til upplýsinga yfirlit úr reglubundnu eftirliti frá 18. sept. til 11. nóv. sl. ásamt málaskrá.
b) Rekstrarreikningur.
Lagður fram til upplýsinga, rekstarreikningur HES til 11. nóvember n.k.
Elsa greindi frá helstu tölum en ljóst er að Heilbrigðiseftirlitið muni ná að standast fjárhagsáætlun ársins hvað varðar niðurstöðutölur.
3. Bókhald og símsvörun 2014 – drög að þjónustusamningi, tilboð frá SASS.
Lagt fram tilboð/samningsdrög frá SASS um þjónustukaup á bókhaldi og símsvörun.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands samþykkir samningsdrögin og felur framkvæmdastjóra að ganga frá samningum við SASS.
4. Gjaldskrá fyrir meðhöndun úrgangs og gjaldskrá fyrir fráveitur í Hrunamannahreppi.
Lagðar fram gjaldskrár um meðhöndlun úrgangs og fyrir fráveitur í Hrunamannahreppi. Framkvæmdastjóri gerði frekari grein fyrir þeim.
Samþykktar án athugasemda.
5. Mál úr eftirliti.
a) Kaupás v/Kjarvals Kirkjubæjarklaustri.
Lögð fram bréf HES, dags. 30. september og 14. október sl. til Kaupáss hf. v/Kjarvals Kirkjubæjarklaustri ásamt svarbréfi fyrirtækisins, dags. 10. október sl.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands staðfestir þvingunaraðgerðir er fram koma í bréfum HES og felur starfsmönnum að fylgja málinu eftir.
b) Klausturhólar og grunn- og leikskóli Skaftárhrepps.
Lögð fram bréf HES, dags. 26. september, 30. september og 14. október ásamt svarbréfi sveitarfélagsins, dags. 14. október.
Til upplýsinga en fullnægjandi svör/ hafa fengist.
c) Fráveita fiskeldis.
Lagt fram bréf HES, dags. 1. nóvember sl., sem svar við erindi Umhverfisstofnunar varðandi fráveitu Náttúru fiskiræktar.
Nefndin staðfestir umsögn HES.
6. Skipun í samstarfsstarfshóp um aðgerðir í fráveitumálum.
Lagt fram bréf frá Umhverfisstofnun, dags. 8. nóvember sl. þar sem óskað er eftir tilnefningu í ,,samstarfs- og stuðningshóp um aðgerðir í fráveitumálum“
Elsa Ingjaldsdóttir gerði frekari grein fyrir málinu og upplýsti að framkvæmdastjórar heilbrigðiseftirlitssvæða hefðu óskað eftir frestun á starfi slíks hóps meðan fram færi vinna við endurskoðun reglugerðarinnar en slík vinna stendur nú yfir.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands frestar skipun í hópinn þar til hópur um endurskoðun á reglugerð um fráveitur og skólp hefur skilað vinnu sinni.
7. Önnur mál.
a) Húsnæðismál.
Framkvæmdastjóra falið að ræða við leigusala um bætt aðgengi fatlaðra að húsnæðinu og að ganga frá húsaleigusamningi við Auðhumlu svf. að Austurvegi 65.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14.10
Gunnar Þorkelsson, form.
Svanborg Egilsdóttir
Páll Stefánsson
Pétur Skarphéðinsson
Unnsteinn Eggertsson
Elsa Ingjaldsdóttir
Valur Bogason
Oddur Árnason