147. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands
haldinn föstudaginn 18. janúar 2013, kl. 13.00 að Austurvegi 65, Selfossi.
Mætt: Gunnar Þorkelsson formaður, Svanborg Egilsdóttir, Unnsteinn Eggertsson, Valur Bogason (símleiðis), Páll Stefánsson, Pétur Skarphéðinsson og Elsa Ingjaldsdóttir Guðmundur Geir Gunnarsson komst ekki.
Undir 5. lið kom Stella Hrönn Jóhannsdóttir inn á fundinn og undir 6. lið kom Birgir Þórðarson.
1) Starfsleyfi til kynningar og afgreiðslu
a) Ný og endurnýjuð
Nr |
Heiti |
Póstnr |
Heimilsfang |
Starfsleyfi |
Áhættumat |
1 |
Lyf og heilsa Hellu |
850 |
Hella |
Br. á húsnæði |
Lítil, 12 ár |
2 |
Olíuversl.Ísl.v/Borg Grímsnesi |
105 |
Reykjavík |
Endurnýjun |
tímabundið , 4 ár |
3 |
Bílanaust ehf. verslun Selfossi |
800 |
Selfoss |
Eigendaskipti |
Lítil, 12 ár |
4 |
Matstofa Árnes ehf. |
801 |
Selfoss |
Endurnýjun |
Skilyrt til 3ja mán. |
5 |
GEO Matvæli ehf. |
800 |
Selfoss |
Nýtt |
á e að skoða |
6 |
Álmur ehf |
801 |
Selfoss |
Nýtt |
Lítil, 12 ár |
7 |
Garðyrkjustöðin Ösp – HRS.Rósir ehf. |
801 |
Selfoss |
Nýtt |
5 (miðlungs) 2 ár |
8 |
Welcome Apartments |
840 |
Laugarvatn |
Nýtt |
Lítil, 12 ár |
9 |
Gistiheimilið Húsið |
861 |
Hvolsvöllur |
Endurnýjun |
Lítil, 12 ár |
10 |
Dvalarheimilið Ás |
810 |
Hveragerði |
Endurnýjun |
1 (mesta) , 12 ár |
11 |
Matur og Músik |
800 |
Selfoss |
Br. á húsnæði |
á e að skoða |
12 |
Hótel Selfoss |
800 |
Selfoss |
Eigendaskipti |
á e að skoða |
Ofangreindar starfsleyfisumsóknir afgreiddar í samræmi við áhættumat en starfsleyfisumsóknir nr. 5, 11 og 12 samþykktar með fyrirvara um jákvæða úttekt heilbrigðisfulltrúa.
b) Starfsleyfi eftir athugasemdafrest
i) Kubbur v/móttöku og meðhöndlunar úrgangs í Vestmannaeyjum.
ii) Hreinsivirki fráveitu við Hellu.
HES falið að gefa út starfleyfin mv. auglýst starfsleyfiskilyrði.
2) Tóbakssöluleyfi
Nr |
Heiti |
Póstfang |
Staður |
Starfsleyfi |
1 |
Kertasmiðjan |
801 |
Selfoss | Endurnýjun |
2 |
Toppurinn |
801 |
Selfoss | Endurnýjun |
3 |
Stjörnunótt ehf. (Húsadalur) |
861 |
Hvolsvöllur | Nýtt leyfi |
Lagt fram til upplýsinga.
3) Samþykktir og gjaldskrár sveitarfélaga
Málsnúmer | Heiti | Fyrirtæki | Dags |
1301043HS | Gjaldskrá sorphirðu 2013 | Skaftárhreppur | 17.01.2013 |
1301035HS | Samþykkt um úrgang | Hrunamannahreppur | 14.01.2013 |
1301026HS | Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar | Rangárþing ytra | 09.01.2013 |
1301016HS | Gjaldskrá úrgangs – beiðni um umsögn | Vestmannaeyjabær | 07.01.2013 |
1301015HS | Gjaldskrá sorphirðu og sorpförgun | Mýrdalshreppur | 07.01.2013 |
1212026HS | Umsagnir um gjaldskrár | Rangárþ.eystra | 19.12.2012 |
1212023HS | Gjaldskrár um meðhöndlun úrgangs og og fráveitu 2012 | Bláskógabyggð | 18.12.2012 |
1212017HS | Breytingar á gjaldskrám 2012 | Hveragerðisbær | 17.12.2012 |
1212016HS | Gjaldskrár fyrir meðhöndlun úrgangs og seyru | Grímsnes- og Grafningshreppur | 17.12.2012 |
Afgreiðsla HES á ofangreindum gjaldskrám og samþykkt er staðfest.
4) Yfirlit.
a) Áætlun fyrir matvælaeftirlit og sýnatökur – samantekt til MAST.
Lögð fram til upplýsinga.
b) Staða eftirlits fyrir árið 2012- tölfræði.
Farið yfir stöðu reglubundins eftirlits í árslok 2012 miðað við áætlun ársins.
Voru heimsóknir í fyrirtæki að mestu skv. áætlun og það sem út af stendur í árslok innan eðlilegra marka og skýringa.
Ennfremur lögð fram ársyfirlit fyrir árið 2012 fyrir eftirfarandi:
- Fjöldi lokinna mála og tegundir þeirra.
- Fjöldi nýrra mála og tegundir þeirra.
- Fjöldi nýrra mála eftir starfsmönnum.
- Fjöldi lokinna mála eftir starfsmönnum.
c) Rekstarreikningur/fjárhagsáætlun fyrir árið 2012.
Lagður fram rekstrarreikningur fyrir árið 2012 en allt bendir til þess að rekstur HES sé innan fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012.
5) Loftgæðamælingar – yfirfarin gögn fyrir 2012.
Lögð fram skýrsla frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og greinargerð Vista er varðar yfirfarnar mælingar úr loftgæðamælistöðvum OR.
Stella Hrönn fór jafnframt yfir samantekt HES á málinu og urðu almennar umræður um málið.
Eftirfarandi bókað:
,,Heilbrigðisnefnd Suðurlands telur skorta upplýsingar um grunngildi H2S í umhverfi. Hækkuð gildi á brennisteinsvetni í andrúmslofti á milli ára er áhyggjuefni og ber að skoða og rannsaka enn frekar. Fer nefndin fram á að OR skili inn frekari upplýsingum um líklega óvissu í mælingu tækjanna og úrvinnslu gagna.
Auk þess fer Heilbrigðisnefnd Suðurlands fram á að fá upplýsingar, eða álit frá Umhverfisstofnun um möguleg grunngildi í umhverfi.“
6) Niðurstaða vöktunar á Þingvallavatni.
Lögð fram vöktunarskýrsla Náttúrufræðistofu Kópavogs um Þingvallavatnið.
Birgir Þórðarson kom jafnframt inn á fundinn og fór yfir samantekt HES á málinu, sérstaklega að teknu tilliti til nálægðar við Nesjavallavirkjun.
Almennar umræður urðu um málið.
7) Bréf frá Önnu Kr. Pétursdóttur.
Lagt fram bréf Önnu Kr. Pétursdóttur, dags. 16. janúar sl. vegna svarbréfs HES, dags.
7. janúar sl., til hennar.
Í bréfinu kemur fram óánægja með svör HES vegna fyrirspurnar hennar og eru frekari spurningar lagðar fram í þessu bréfi.
Eftirfarandi bókað:
,,Heilbrigðisnefnd Suðurlands telur að svarbréf HES hafi gefið eins skýr svör og kostur er á og felur framkvæmdastjóra að árétta það í samræmi við umræðu fundarins. Það er ákvörðun nefndarinnar að um endalegt svar sé að ræða og nánari bréfaskriftir séu ekki til þess fallnar að varpa skýrara ljósi á málið og um starfsemina að Eyrarbraut 29, Stokkseyri og möguleg áhrif hennar á íbúa í nágrenninu. Jafnframt er framkvæmdastjóra falið að benda viðkomandi á viðeigandi kæruleið vegna ofangreinds.“
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15.15
Gunnar Þorkelsson, form.
Svanborg Egilsdóttir
Páll Stefánsson
Pétur Skarphéðinsson
Unnsteinn Eggertsson
Elsa Ingjaldsdóttir
Valur Bogason