136. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands
haldinn 27. október 2012, kl. 19.00 í Víkurskála, Vík Mýrdal.
Mætt: Gunnar Þorkelsson, formaður, Páll Stefánsson, Svanborg Egilsdóttir, Unnsteinn Eggertsson, Guðmundur Geir Gunnarsson, Pétur Skarphéðinsson og Elsa Ingjaldsdóttir.
Jafnframt sátu fundinn Birgir Þórðarson, María B. Guðnadóttir, og Rut Áslaugsdóttir.
Valur Bogason boðað forföll. Varamaður hans komst heldur ekki.
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.
1) Starfsleyfi til kynningar og afgreiðslu
Nr |
Heiti |
Póstfang |
Starfsleyfi |
|
1 |
Ferðafélag Ísl.v/Álftavatn |
851 |
Hella | Endurnýjun |
2 |
Ferðafélag Ísl.v/Emstrur |
861 |
Hvolsvöllur | Endurnýjun |
3 |
Ferðafélag Ísl.v/Hrafntinnusker |
851 |
Hella | Endurnýjun |
4 |
Ferðafélag Ísl.v/Hvanngils |
851 |
Hella | Endurnýjun |
5 |
Café Rose – Werner ehf |
810 |
Hveragerði | Nýtt leyfi |
6 |
Danssport ehf |
800 |
Selfoss | Nýtt leyfi |
7 |
Árborg v/Ungmennahúsið og Félagsmst Zelsíuz |
801 |
Selfoss | Br. á húsnæði |
8 |
Sólheimajökull ehf |
871 |
Vík | Nýtt leyfi |
9 |
Kökuval ehf – konditori |
850 |
Hella | Nýtt leyfi |
10 |
Dekkjalagerinn |
800 |
Selfoss | Nýtt leyfi |
11 |
Ferðafélagið Útivist / Álftavatnakrókum |
880 |
Kirkjubæjarklaustur | Endurnýjun |
12 |
Ferðafélagið Útivist / Strútur á Mælifellssandi |
851 |
Hella | Endurnýjun |
13 |
Ferðafélagið Útivist v/Dalakofi |
851 |
Hella | Endurnýjun |
14 |
Árborg v/Sandvíkursalurinn |
800 |
Selfoss | Br. Á starfsemi |
15 |
Skógrækt ríkisins v/ Vatnsból Tjaldsvæðis Þjórsárdals |
801 |
Selfoss | Nýtt leyfi |
16 |
Skeggi |
801 |
Selfoss | Eigendaskipti |
17 |
Bónus Larsenstræti |
800 |
Selfoss | Nýtt leyfi |
18 |
Léttur ehf |
800 |
Selfoss | Br. Á starfsemi |
19 |
Vatnsveita Bláskógabyggðar v/Laugarvatn |
840 |
Laugarvatn | Nýtt leyfi |
20 |
Ormsstaðir |
801 |
Selfoss | Nýtt leyfi |
21 |
Matorka v/ Fiskeldisstöðin Galtalæk |
851 |
Hella | Nýtt leyfi |
22 |
Matorka v/ Fiskeldisstöðin Fellsmúla |
851 |
Hella | Nýtt leyfi |
23 |
Icelandic glacier charr ehf |
880 |
Kirkjubæjarklaustur | Nýtt leyfi |
24 |
Veiði/fiskræktfél Landmafréttar v/ Veiðivötn |
851 |
Hella | Nýtt leyfi |
25 |
Máni ÁR-70 ehf |
820 |
Eyrarbakki | Nýtt leyfi |
Öll starfsleyfin samþykkt nema starfsleyfisumsóknir nr. 14, 17, 20, 21, 22, 23, samþykkt með fyrirvara um jákvæða úttekt heilbrigðisfulltrúa og eftir atvikum, lögbundinn auglýsingatíma starfsleyfis.
Starfsleyfisumsókn nr. 15 hafnað þar til fyrirliggja fullnægjandi niðurstöður á neysluvatni.
2) Tilnefning fulltrúa í vatnasvæðisnefndir á svæðum 3 og 4 sbr. vatnatilskipunin og flokkun vatnshlota.
Lagður fram tölvupóstur ásamt fylgigögnum frá Umhverfisstofnun þar sem óskað er eftir tilnefningu frá Heilbrigðisnefnd Suðurlands í vatnasvæðanefndir nr. 3 og 4.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands samþykkir að tilnefna Birgi Þórðarson sem aðalmann og Sigrúnu Guðmundsdóttur sem varamann í báðar nefndirnar.
3) Orkuveita Reykjavíkur v/Hellisheiðarvirkjunar.
Elsa og Birgir gerðu grein fyrir fundi HES með Orkuveitu Reykjavíkur vegna Hellisheiðarvirkjunar. Málefni fundarins var endurskoðun starfsleyfis OR v/Hellisheiðarvirkjunar, niðurdæling affalsvatns, vöktun grunnvatns ofl.
Málið rætt.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands felur starfmönnum HES að vinna að endurskoðun starfsleyfisskilyrðanna og skulu þau lögð fram á næsta fundi nefndarinnar til afgreiðslu í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 785/1999.
4) Mál úr eftirliti.
a) Möguleg matarborin sýking í Gnúpverjahreppi
Lagt fram til upplýsinga minnisblað HES vegna málsins.
5) Aðalfundarmálefni.
a) Aðalfundargögn.
Farið yfir aðalfundargögnin, fyrirkomulag fundarins rætt.
b) Tillaga fjárhagsnefndar SASS.
Lagðar fram og kynntar, tillögur fjárhagsnefndar SASS frá 12. október sl. en tillögur sem bera á framá aðalfundi skulu, skv. samþykktum HES, sendast stjórn HES amk. 3 vikum fyrir aðalfund.
Tillögum fjárhagsnefndar SASS því vísað til umræðu undir dagskrárliðnum ,,Önnur mál“ á aðalfundi HES á morgun.
6) Annað.
a) Umsögn vegna ræktunar á erfðabreyttu byggi.
Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar ásamt drögum að starfsleyfiskilyrðum fyrir ORF líftækni ehf. vegna starfsemi með erfðabreyttar lífverur í Landbúnaðarháskólanum að Reykjum, Ölfusi.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands áréttar að varlega sé farið við starfsemi af þessu tagi og tryggt skuli að erfðabreyttar lífverur berist ekki í umhverfið. Starfsmönnum falið að gefa umsögn í samræmi við umræðu á fundinum.
b) Kæra vegna sorphirðuútfærslu í Bláskógabyggð.
Lagt fram til upplýsinga afrit af bréfi UMHVR, dags. 21. september 2011, til Landssambands sumarhúsaeigenda þar sem kæru þeirra á hendur UST og HES vegna málsmeðferðar varðandi framkvæmd úrskurðar um staðsetningu sorpíláta í Bláskógabyggð er vísað frá en UST falið að leiðbeina HES um framkvæmd. Einnig lagt fram eldra bréf frá HES til Landssambandsins um sama mál, dags. 12. júlí 2010.
c) Haustfundur.
Framkvæmdastjóri upplýsti um nýafstaðin haustfund Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða með aðkomu UMHVR/UST og SLR/MAST. Á fundinn fóru allir starfsmenn HES enda fundurinn samræming og fræðsla fyrir heilbrigðisfulltrúa landsins.
Fleira ekki gert og fundi slítið kl. 20.00
Gunnar Þorkelsson, form. Páll Stefánsson Pétur Skarphéðinsson
Svanborg Egilsdóttir Unnsteinn Eggertsson Guðmundur Geir Gunnars
Elsa Ingjaldsdóttir Birgir Þórðarson María B. Guðnadóttir
Rut Áslaugsdóttir