133. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands
haldinn föstudaginn 29. apríl 2011, kl. 13.30 að Austurvegi 56, Selfossi.
Fyrir fund voru fiskþurrkunarfyrirtækin Fiskmark og Lýsi í Þorlákshöfn, skoðuð.
Mætt: Gunnar Þorkelsson, formaður, Páll Stefánsson, Svanborg Egilsdóttir, Unnsteinn Eggertsson, Guðmundur Geir Gunnarsson, Pétur Skarphéðinsson og Elsa Ingjaldsdóttir. Vegna tæknilega örðuleika gat Valur Bogason ekki verið með í gegnum fjarfundabúnað.
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.
1) Starfsleyfi til kynningar og afgreiðslu.
a) Ný og endurnýjuð.
Nr | Heiti | Póstfang | Starfsleyfi | |
1 | Bolaöldur ehf.- landmótun | 800 | Selfoss | Nýtt leyfi |
2 | Hótel Núpar – Islandia hótel ehf. | 880 | Kirkjubæjarkl. | Endurnýjun |
3 | BM Vallá ehf. Vikurnáma | 801 | Selfoss | Eigendaskipti |
4 | Árborg v/Samkomuhúsið Gimli | 800 | Selfoss | Nýtt leyfi |
5 | Pizza Islandia – Okkar Auðlind | 800 | Selfoss | Eigendaskipti |
6 | Eyrarbúið ehf. v/Gestastofu | 861 | Hvolsvöllur | Nýtt leyfi |
7 | Skinnhúfa ehf. – gisting í bústað | 851 | Hella | Nýtt leyfi |
8 | Ferðaþjónusta Garðsauka -Jón Logi Þorsteins. | 861 | Hvolsvöllur | Endurnýjun |
9 | Xata ehf. – Verslunin Karpaty | 800 | Selfoss | Nýtt leyfi |
10 | BM Vallá ehf. Vikurvinnsla Þorlákshöfn | 815 | Þorlákshöfn | Eigendaskipti |
11 | Sigurður Ágústsson/tilraunaverkefnis um endurnýtingu úrgangs | 845 | Flúðir | Nýtt leyfi |
12 | Bónstöð Hafþórs | 800 | Selfoss | Nýtt leyfi |
13 | Íslenska Gámafélagið jarðgerð Kirkjub.kl. | 880 | Kirkjubæjarkl. | Nýtt leyfi |
14 | Fótaaðgerðarstofan Björk ehf. | 900 | Vestmannaeyjar | Eigendaskipti |
15 | Grímur kokkur ehf. | 900 | Vestmannaeyjar | Endurnýjun |
17 | Kaffi Kolviðarhóll – Orkusýn ehf. | 111 | Reykjavík | Nýtt leyfi |
18 | Lyf og heilsa, Þorlákshöfn | 815 | Þorlákshöfn | Endurnýjun |
19 | Vélsmiðjan Magni ehf. | 860 | Hvolsvöllur | Eigendaskipti |
20 | Skammtímavistun Álftarima | 800 | SELFOSS | Eigendaskipti |
21 | Þjónustuíbúðir Vallholti 12-14 | 800 | SELFOSS | Eigendaskipti |
22 | Þjónustuíbúðir Vallholti 9 | 800 | SELFOSS | Eigendaskipti |
23 | Steinka Bjarna ehf. – Húsið Gisting | 801 | Selfoss | Eigendaskipti |
24 | Gistiskálinn Breiðabólstað | 861 | Hvolsvöllur | Endurnýjun |
25 | Hveragerðisbær v/ Heimilið Birkimörk | 810 | Hveragerði | Eigendaskipti |
26 | Mosfell sf. | 850 | Hella | Endurnýjun |
27 | Þjónustuíbúðir Selvogsbraut 1, Þorlákshöfn | 800 | Selfoss | Eigendaskipti |
28 | Eimskip Ísland – Flytjandi | 800 | Selfoss | Eigendaskipti |
29 | Gistiheimilið Fossnes | 801 | Selfoss | Br. á starfsemi |
30 | Sport-Tæki ehf. | 810 | Hveragerði | Nýtt leyfi |
31 | Ístak hf. v.Starfsmannabúða o.m.fl. Búðarhálsvirkjun | 105 | Reykjavík | Nýtt leyfi |
32 | Hótel Hvolsvöllur – gisting – ÓG hótel ehf. | 860 | Hvolsvöllur | Eigendaskipti |
33 | Reiðhöllin Flúðum ehf. | 845 | Flúðir | Nýtt leyfi |
34 | Matarsmiðjan- Matís ohf. | 845 | Flúðir | Nýtt leyfi |
35 | Hótel Hvolsvöllur,veitingar-GS Veitingar ehf. | 860 | Hvolsvöllur | Eigendaskipti |
36 | Borealis Imports | 815 | Þorlákshöfn | Nýtt leyfi |
37 | Bílaleigan Ós og partasala | 800 | Selfoss | Nýtt leyfi |
38 | Orlofssjóður BHM v/ vatnsból | 801 | Selfoss | Nýtt leyfi |
40 | Vacation House in Iceland, Hofdatun | 801 | Selfoss | Nýtt leyfi |
41 | Gisting Vatnsholti | 801 | Selfoss | Br. á starfsemi |
42 | GM Gisting | 900 | Vestmannaeyjar | Nýtt leyfi |
43 | Sveitakjallarinn | 880 | Kirkjubæjarkl. | Nýtt leyfi |
44 | Julia´s Guesthouse | 801 | Selfoss | Nýtt leyfi |
45 | Þingvellir þjóðgarður | 801 | Selfoss | Endurnýjun |
Öll starfsleyfin samþykkt nema nr. 11, 36, 38, 43 og 45 sem eru samþykkt með fyrirvara um jákvæða úttekt eftirlitsins og uppfylltum kröfum til starfseminnar. Starfsleyfisumsóknir nr. 40 og 44 einnig samþykktar með fyrirvara um afgreiðslu viðkomandi skipulags- og byggingafulltrúa.
Afgreiðslu starfsleyfisumsóknar nr. 37 frestað þar til eftir lögbundin auglýsingatíma starfsleyfisskilyrða.
b) Tóbakssöluleyfi
Nr | Heiti | Póstfang | Starfsleyfi | |
1 | Samkaup Strax hf. Verslunin Flúðum | 845 | Flúðir | Endurnýjun |
2 | Xata ehf. – Verslunin Karpaty | 800 | Selfoss | Nýtt leyfi |
Lagt fram til upplýsinga.
2) Reglubundið eftirlit.
Lagður fram til upplýsinga, listi yfir reglubundið eftirlit með fyrir tækjum, frá síðasta fundi.
3) Samþykkt og gjaldskrá um hundahald í Grímsnes- og Grafningshreppi. Afgreiðsla HES lögð fram til upplýsinga.
4) Mál úr eftirliti.
a) Byggingafélagið Árborg – starfsleyfi fellt úr gildi.
Lagt fram bréf HES, dags. 29. mars sl. þar sem fram kemur ákvörðun um afturköllun starfsleyfis vegna árangurslaus fjárnáms hjá fyrirtækinu og vangoldinna eftirlitsgjalda. Engin andmæli bárust.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands samþykkir að afturkalla starfsleyfi fyrirtækisins og felur framkvæmdastjóra úrvinnslu málsins skv. lögum þar að lútandi.
b) Meindýravarnir Suðurlands – starfsleyfi fellt úr gildi.
Lagt fram bréf HES, dags. 29. mars sl. þar sem fram kemur ákvörðun um afturköllun starfsleyfis vegna árangurslaus fjárnáms hjá fyrirtækinu og vangoldinna eftirlitsgjalda. Engin andmæli bárust.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands samþykkir að afturkalla starfsleyfi fyrirtækisins og felur framkvæmdastjóra úrvinnslu málsins skv. lögum þar að lútandi.
c) Baldur Þ Bjarnason v/vatnsbóls Múlakoti.
Lagt fram bréf HES dags. 29. mars sl. þar sem fram kemur ákvörðun um afturköllun starfsleyfis vegna árangurslaus fjárnáms hjá fyrirtækinu og vangoldinna eftirlitsgjalda. Engin andmæli bárust.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands samþykkir að afturkalla starfsleyfi fyrirtækisins og felur framkvæmdastjóra úrvinnslu málsins skv. lögum þar að lútandi.
d) Vottun leikvallatækja.
Lagt fram til upplýsinga, bréf Umhverfisstofnunar, dags. 13. apríl sl. er varðar túlkun reglugerðar nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. Hafði HES sérstaklega óskað eftir túlkun á ákvæðum reglugerðarinnar er varðar vottun leikvallatækja. Samkvæmt túlkun UST skal Neytendastofa hafa eftirlit með því að leiktæki á markaði uppfylli settar reglur um öryggi og skal framleiðandi/ábyrgðaraðili leiktækja annarra en til einkanota leita eftir staðfestingu Neytendastofu.
e) Undanþágubeiðni frá reglugerð nr. 941/2002 um fjarlægðarákvæði.
Lagt fram til upplýsinga umsagnarbeiðni Umhverfisráðuneytisins dags. 7. apríl sl. ásamt svarbréfi HES, dags. 15. apríl sl. en málið varðar beiðni skipulagsfulltrúa Ölfus um undanþágu frá ákvæðum um fjarlægðarmörk reglugerðar nr. 941/2002 milli íbúðarhúsa og mengandi atvinnustarfsemi og/eða landbúnaðar og varðar sérstaklega uppbyggingu/endurnýjun húsa sem dæmd hafa verið óíbúðarhæf vegna jarðskjálfta. HES veitir jákvæða umsögn um beiðnina.
f) Niðurstöður eftirlits Umhverfisstofnunar með sorpbrennslum á svæði HES.
Lagðar fram til kynningar, upplýsingar um niðurstöður mælinga á útblæstri sorpbrennslna á Kirkjubæjarklaustri og Vestmannaeyjum ásamt síðustu bréfum Umhverfisstofnunar og svörum frá Vestmannaeyjabæ annars vegar og Íslenska gámafélaginu hins vegar f.h. sorpbrennslunnar á Klaustri.
g) Endurnýting úrgangs Birtingaholti.
Lögð fram drög að starfsleyfisskilyrðum sbr. starfsleyfisumsókn nr. 37 hér að framan. Framkvæmdastjóri gerði frekari grein fyrir málinu en starfsleyfisskilyrðin eru unnin með hliðsjón af sambærilegri starfsemi fyrir norðan og austan auk almennra samræmdra starfsleyfiskilyrða skv. auglýsingu nr. 582/2000.
Um er að ræða tilraunastarfsemi og er framkvæmdastjóra falið að afgreiða málið á grundvelli fyrirliggjandi gagna og veita starfsleyfi til þriggja ára.
h) Endurnýjun heimasíðu HES og starfsmannamál.
Elsa sýndi nefndarmönnum nýtt útlit heimasíðu HES en ætlunin er að birta þar meira efni m.a. niðurstöður neysluvatnsgæða á vatnsveitum, fyrirtæki með gilt starfsleyfi og fleira. Gerði einnig grein fyrir breyttu vinnufyrirkomulagi starfsmanna þar sem Birgir Þórðarson hefur farið í 50% starfshlutfall, og tímabundinni ráðningu Halldórs Þorsteinssonar í 50% starf á móti.
5) Fiskmark.
Á síðasta fundi var afgreiðslu um útgáfu starfsleyfis frestað og ákveðið að nefndin gerði stöðumat á úrbótaferlinu. Nú hefur Heilbrigðisnefnd Suðurlands ásamt starfsmönnunum Elsu Ingjaldsdóttir og Birgi Þórðarsyni, heimsótt fyrirtækið og farið yfir stöðuna með forráðamanni þess.
Fyrir liggja upplýsingar frá skipulags- og byggingafulltrúa, sendar með tölvupósti 27. apríl sl, þar sem farið var fram á að sett yrði inn á teikningar hönnun hreinsibúnaðar og annarra mengunarvarna.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands tekur undir öll atriði sem fram koma í tölvubréfi skipulags- og byggingafulltrúa og gerir kröfu um að gerð verði grein fyrir þeim mengunarvarnarbúnaði sem hefur verið settur upp hjá fyrirtækinu, bæði á teikningu og með greinargerð, þar sem afkastageta hreinsibúnaðar er útlistuð. Jafnframt er farið fram á upplýsingar um framtíðar fyrirkomulag hreinsi- og mengunarvarnarbúnaðar miðað við afkastagetu hans og framleiðslu fyrirtækisins.
Ennfremur óskar Heilbrigðisnefnd Suðurlands eftir því að fá sendar niðurstöður eftirlits Matvælastofnunar vegna fyrirsjáanlegra breytinga á húsnæði og aðbúnaði starfseminnar.
Ljóst er að einhverjar úrbætur hafa átt sér stað en nefndin telur sig þurfa frekari upplýsingar til að leggja mat á úrbæturnar.
Ákvörðun um útgáfu starfsleyfis frestað þar til ofangreindar upplýsingar berast og afgreiðsla skipulags- og bygginganefndar um sama mál, liggur fyrir.
Fleira ekki gert og fundi slítið kl. 15.10
Gunnar Þorkelsson, form. Páll Stefánsson Pétur Skarphéðinsson
Svanborg Egilsdóttir Guðmundur Geir Gunnarss. Unnsteinn Eggertsson
Elsa Ingjaldsdóttir