131. fundur Heilbrigðisnefndr Suðurlands
haldinn föstudaginn 14. janúar 2011, kl. 13.00 að Austurvegi 56, Selfossi.
Mætt: Gunnar Þorkelsson, formaður, Páll Stefánsson, Unnsteinn Eggertsson, Valur Bogason (í gegnum fjarfundabúnað), Svanborg Egilsdóttir, Guðmundur Geir Gunnarsson, Pétur Skarphéðinsson og Elsa Ingjaldsdóttir.
1) Starfsleyfi til kynningar og afgreiðslu
a) Ný og endurnýjuð
Nr | Heiti | Póstfang | Starfsleyfi | |
1 | Sambýlið Breiðabólsstaður slf | 801 | Selfoss | Ný starfsemi |
2 | Hjúkrunar- og dvalarh. Klausturhólar | 880 | KIRKJUBÆJARKLAUSTUR | Endurnýjun |
3 | Skaftárhreppur v/Gámastöðvar | 880 | KIRKJUBÆJARKLAUSTUR | Ný starfsemi |
4 | Laugalandsskóli, Sundlaug/Skóli/Íþróttahús | 851 | HELLA | Endurnýjun |
5 | Bíl-X ehf. | 810 | HVERAGERÐI | Endurnýjun |
6 | Gröfutækni ehf | 845 | Flúðir | Endurnýjun |
7 | Límtré Vírnet ehf – Reykholti | 801 | Selfoss | Endurnýjun |
8 | Límtré Vírnet ehf. Flúðum | 845 | Flúðir | Endurnýjun |
9 | Svínabú Bjarnastöðum -Stjörnugrís hf | 801 | Selfoss | Endurnýjun |
10 | Svínabú Sléttabóli-Stjörnugrís | 801 | Skeiða- og Gnúpverjahreppi | Endurnýjun |
11 | Vatnsveita Rangárþing eystra – Árgilsstaðaveita | 860 | Hvolsvöllur | Ný starfsemi |
12 | Skeljungur hf v/Þorlákshöfn | 108 | REYKJAVÍK-8 | Endurnýjun |
13 | Vatnsból Eystra-Hraun ehf | 880 | Kirkjubæjarklaustur | Endurnýjun |
14 | Vatnsból Ytri-Ásum, Skaftárhreppi | 880 | Kirkjubæjarklaustur | Endurnýjun |
15 | Vatnsveita Hrunamannahreppi | 845 | FLÚÐIR | Endurnýjun |
16 | Vatnsveita Heklubyggð, vélar og veita ehf | 851 | HELLA | Endurnýjun |
17 | Vatnsveita Rangárþing eystra – Skógum | 860 | HVOLSVÖLLUR | Endurnýjun |
18 | Vatnsveita Rangárþing eystra / Hvolsvallar | 860 | Hvolsvöllur | Endurnýjun |
19 | Vatnsveita Rangárþing eystra / V-Landeyja, Tunguveita | 860 | Hvolsvöllur | Endurnýjun |
20 | Vinnslustöðin hf – fiskvinnsla | 900 | VESTMANNAEYJAR | Endurnýjun |
21 | Öndverðanes ehf v/ sundlaug Öndverðanesi | 105 | Reykjavík | Endurnýjun |
22 | Lyf og heilsa, Hellu | 850 | HELLA | Endurnýjun |
23 | Smáhýsi | 900 | VESTMANNAEYJAR | Endurnýjun |
24 | Vélaverkstæðið Klakkur ehf | 845 | FLÚÐIR | Endurnýjun |
25 | Eyjaís ehf | 900 | VESTMANNAEYJAR | Endurnýjun |
26 | Grímsnes- og Grafn v/Leiksk. Kátaborg | 801 | SELFOSS | Endurnýjun |
27 | Kumbaravogur ehf | 825 | STOKKSEYRI | Endurnýjun |
28 | N1 hf. þjónustustöð v/ Árborg Árnesi | 801 | Selfoss | Endurnýjun |
29 | N1 hf. þjónustustöð v/ Básaskersbryggju | 900 | VESTMANNAEYJAR | Endurnýjun |
30 | N1 hf. þjónustustöð v/ Brautarhóli, Bisk. | 801 | Selfoss | Endurnýjun |
31 | N1 hf. þjónustustöð v/ Flúðir | 845 | Flúðir | Endurnýjun |
32 | N1 hf. þjónustustöð v/ Fossnesti | 800 | Selfoss | Endurnýjun |
33 | N1 hf. þjónustustöð v/ Geysis | 801 | Selfoss | Endurnýjun |
34 | N1 hf. þjónustustöð v/ Hlíðarenda | 860 | Hvolsvöllur | Endurnýjun |
35 | N1 hf. þjónustustöð v/ Hveragerði | 810 | HVERAGERÐI | Endurnýjun |
36 | N1 hf. þjónustustöð v/ Kirkjubæjarklaustur | 880 | KIRKJUBÆJARKLAUSTUR | Endurnýjun |
37 | N1 hf. þjónustustöð v/ Laugarvatn | 840 | LAUGARVATN | Endurnýjun |
38 | N1 hf. þjónustustöð v/ Leirubakki | 851 | HELLA | Endurnýjun |
39 | N1 hf. þjónustustöð v/ Steina | 861 | Hvolsvöllur | Endurnýjun |
40 | Kjörís ehf | 810 | Hveragerði | Endurnýjun |
41 | Hótel Laki, Efri Vík | 880 | KIRKJUBÆJARKLAUSTUR | Endurnýjun |
42 | Hús og stigar ehf -Trésmiðjan Steinahlíð | 845 | FLÚÐIR | Endurnýjun |
43 | Kaupás hf v/Krónunnar Vm.Stran | 110 | REYKJAVÍK-5 | Endurnýjun |
44 | Kornmarkaður Suðurlands ehf | 860 | Hvolsvöllur | Endurnýjun |
45 | Nýjó ehf | 851 | Hella | Endurnýjun |
46 | Pakkhúsið Hellu ehf | 850 | Hella | Endurnýjun |
47 | Árborg v/Íþróttahús Stokkseyri | 825 | STOKKSEYRI | Endurnýjun |
48 | Árborg v/Staður Eyrabakka | 820 | EYRARBAKKI | Endurnýjun |
49 | Árborg v/Sundhöll Selfoss | 800 | SELFOSS | Endurnýjun |
50 | Árborg v/Sundlaug Stokkseyrar | 825 | STOKKSEYRI | Endurnýjun |
51 | Kiwanisklúbburinn Ölver | 815 | ÞORLÁKSHÖFN | Endurnýjun |
52 | Snyrtistofa Ólafar | 800 | SELFOSS | Endurnýjun |
53 | Flóahreppur v/ Félagsheimilið Þingborg | 801 | Selfoss | Endurnýjun |
54 | Hótel Hvolsvöllur – Hörganes ehf | 860 | Hvolsvöllur | Endurnýjun |
55 | Veróna hársnyrtistofa ehf | 800 | Selfoss | Endurnýjun |
56 | Kaupás hf v/Kjarval Hellu | 850 | HELLA | Endurnýjun |
57 | Kaupás hf v/Kjarval Hvolsvelli | 860 | Hvolsvöllur | Endurnýjun |
58 | Ölfus v/ Leikskólinn Bergheimar | 815 | ÞORLÁKSHÖFN | Endurnýjun |
59 | Ölfus Versalir , samkomusalur | 815 | ÞORLÁKSHÖFN | Endurnýjun |
60 | Menntaskólinn að Laugarvatni | 840 | LAUGARVATN | Endurnýjun |
61 | Árborg v/Þjónustumiðst.aldraðra | 800 | SELFOSS | Endurnýjun |
62 | Netpartar ehf | 801 | Selfoss | Endurnýjun |
63 | Vatnsból Fit, Eyjafjöllunum | 861 | Hvolsvöllur | Ný starfsemi |
64 | Grímur kokkur ehf | 900 | VESTMANNAEYJAR | Endurnýjun |
65 | Kumbaravogur ehf | 825 | STOKKSEYRI | Endurnýjun |
66 | ÍSTAK v/Búðarhálsvirkjunar | 801 | Selfoss | Ný starfsemi |
Öll starfleyfin samþykkt án athugasemda.
b) Tóbakssöluleyfi
Nr | Heiti | Póstfang | Starfsleyfi | |
1 | Kaupás hf. v/Krónan, Strandg.VM | 900 | Vestmannaeyjar | Endurnýjun |
2 | N1 hf. þjónustustöð v/ Fossnesti | 860 | Hvlolsvöllur | Endurnýjun |
3 | N1 hf. þjónustustöð v/ Hlíðarenda | 800 | Selfoss | Endurnýjun |
4 | N1 hf. þjónustustöð v/ Hveragerði | 810 | Hveragerði | Endurnýjun |
Lagt fram til upplýsinga
2) Gjaldskrár sveitarfélaga
a) Grímsnes- og Grafningshreppur – gjaldskrá fyrir fráveitu og meðhöndlun seyru – Afgreiðsla HES staðfest
b) Grímsnes- og Grafningshreppur – gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs– Afgreiðsla HES staðfest
c) Árborg- gjaldskrá fyrir sorphirðu – Afgreiðsla HES staðfest
d) Árborg- gjaldskrá um kattahald– Afgreiðsla HES staðfest
e) Árborg – gjaldskrá um hundahald– Afgreiðsla HES staðfest
f) Rangárþing eystra- gjaldskrá vegna sorphirðu – Afgreiðsla HES staðfest
g) Hrunamannahreppur – gjaldskrá fyrir fráveitur– Afgreiðsla HES staðfest
h) Hrunamannahreppur – gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs– Afgreiðsla HES staðfest
i) Skeiða- og Gnúpverjahreppur – gjaldskrá fyrir sorphirðu, sorpeyðingu og seyrulosun– Afgreiðsla HES staðfest
j) Bláskógabyggð – gjaldskrá fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa– Afgreiðsla HES staðfest
k) Bláskógabyggð – gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs– Afgreiðsla HES staðfest
l) Vestmannaeyjabær- gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs– Afgreiðsla HES staðfest
Heilbrigðisnefnd Suðurlands heimilar HES afgreiðslu umsagna vegna samþykkta og gjaldskráa sveitarfélaga enda staðfesti nefndin afgreiðsluna á næstu fundi nefndarinnar.
3) Yfirlit 2009
a) Rekstaryfirlit frá 2010
Lagt fram óyfirfarið rekstraryfirlit ársins 2010. Samkvæmt rekstrareikningi er gert ráð fyrir að niðurstaða fjárhagsáætlunar HES standist að mestu. Munar þar þó helst um tæplega 5 milljón króna framlag ríkisins vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og áhrif þess á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
b) Tölfræðileg samantekt vegna eftirlits ársins 2010 –
Lögð fram til upplýsinga tölfræðileg samantekt niðurstaðna vegna sýnatöku ársins 2010 og samanburður milli ára.
4) Eftirlitsáætlun fyrir árið 2011
a) Heildaráætlun heilbrigðiseftirlits – Lögð fram til upplýsinga eftirlitsáætlun ársins 2011 og skipting áætlunar á starfsmenn
b) Áætlun matvælaeftirlits vegna 2011 – Lögð fram til upplýsinga samantekt vegna matvælaeftirlits fyrir árið 2011
5) Mál úr eftirliti
a) Hótel Rangá – tilkynning um meðferð máls – lagt fram til upplýsinga bréf HES dags. 30. nóvember sl.
b) Hótel Selfoss- tilkynning um meðferð máls – Lögð fram til upplýsinga tvö bréf HES dags. 22. og 30. desember sl.
c) Töfragarðurinn – tilkynning um meðferð máls – lagt fram bréf HES dags. 22. desember sl. Afgreiðsla HES staðfest.
6) Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar um útgáfu starfsleyfis til handa Netpörtum ehf. – Lagt fram bréf Umhverfisráðuneytis dags. 23. desember sl. ásamt stjórnsýslukæru með fylgigögnum, frá Guðrúnu Thorsteinsson og Símoni Ólafssyni vegna ákvörðunar Heilbrigðisnefndar Suðurlands um útgáfu starfsleyfis til handa Netpörtum ehf. Ennfremur lögð fram drög að svar nefndarinnar.
Samþykkt að senda framlögð drög sem svar nefndarinnar við kærunni.
7) Loftgæði – Lagt fram til upplýsinga afrit af bréfi Umhverfisstofnunar dags. 22. desember sl., um beiðni til ráðuneytisins um fjárframlag til að kaupa annan svifryksmæli til að staðsetja undir Eyjafjöllum
Heilbrigðisnefnd Suðurlands tekur undir beiðni Umhverfisstofnunar og telur áhugavert að geta fylgst með mælingum á svifryki í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli.
8) Sorpbrennslustöðvar á svæði HES
Farið var yfir málefni sorpbrennslustöðva á svæði Heilbrigðisnefndar Suðurlands í ljósi upplýsinga sem nefndinni bárust nýlega.
Almennar umræður urðu um málið og eftirfarandi bókað:
,,Á svæði Heilbrigðisnefndar Suðurlands starfa tvær sorpbrennslur, á Kirkjubæjarklaustri og Vestmannaeyjum, með starfsleyfi og undir eftirliti Umhverfisstofnunar. Nú hefur komið fram að díoxínmæling sem gerð var árið 2007 sýndi styrk efnisins langt yfir núgildandi viðmiðunarmörkum nýrra sorpbrennslustöðva.
Samkvæmt markmiðum þeirra laga sem heilbrigðisnefndir sveitarfélaga starfa eftir ber að búa landsmönnum heilnæm lífsskilyrði og vernda þau gildi sem felast í heilnæmu og ómenguðu umhverfi. Til að svo megi vera er nauðsynlegt að upplýsingar er snerta almannheill berist viðkomandi nefndum. Upplýsingar um mælingar á magni díoxíns í útblæstri sorpbrennslustöðva í Vestmannaeyjum og á Kirkjubæjarklaustri bárust fyrst til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands mánudaginn 3. janúar sl. Heilbrigðisnefnd Suðurlands harmar að jafnmikilvægar upplýsingar hafi ekki verið kynntar nefndinni strax og upplýsingum komið skilmerkilega á framfæri við íbúa í nágrenni umræddra stöðva.
Vill Heilbrigðisnefnd Suðurlands beina þeim eindregnu tilmælum til Umhverfisstofnunar að fylgja málum þannig eftir að nú þegar verði lágmörkuð hætta á myndun díoxíns í útblæstri. Ennfremur vill Heilbrigðisnefnd Suðurlands beina sömu tilmælum til viðkomandi sveitarfélaga að bregðast nú þegar við til að tryggja lágmörkun á myndun díoxíns td. með frekari flokkun úrgangs til brennslu og hærri eftirbruna.
Hvetur nefndin þessa aðila, sveitarfélögin og Umhverfisstofnun, til að taka höndum saman varðandi málið með hagsmuni almennings, heilnæmra lífsskilyrða og alls lífríkis.
Að lokum beinir Heilbrigðisnefnd Suðurlands þeim eindregnu tilmælum til Umhverfisstofnunar og umræddra sveitarfélaga að flýta nýrri sýnatöku eins og kostur er í ljósi breyttra aðstæðna á þessum brennslustöðvum.“
9) Húsnæðismál
Formaður greindi frá fundi fyrr um morguninn er varðar sameiginlegt húsnæði fyrir heilbrigðiseftirlit, stofnanir á Austurvegi 56 og aðrar stofnanir á vegum sveitarfélaga á Suðurlandi í Sandvíkurskóla á Selfossi. Málið kynnt.
10) Starfsmannamál
Framkvæmdastjóri greindi frá fyrirhuguðum breytingum í starfsmannamálum. Málið kynnt.
Fleira ekki gert og fundi slítið kl. 15.00
Gunnar Þorkelsson Unnsteinn Eggertsson Páll Stefánsson
form.
Valur Bogason Svanborg Egilsdóttir Guðmundur Geir Gunnarsson
Pétur Skarphéðinsson Elsa Ingjaldsdóttir