Hrina alvarlegra sýkinga hjá börnum af völdum E. coli baktería

Uppfært 11. júlí: Sjá fréttasíðu Sóttvarnalæknis

Uppfært 9. júlí Ný frétt frá Sóttvarnalækni

Á undanförnum 2–3 vikum hafa 4 börn greinst á Íslandi með alvarlega sýkingu af völdum E. coli bakteríu  (STEC). Fólk getur smitast af STEC með menguðum matvælum eða vatni, með beinni snertingu við dýr eða mengaðan úrgang dýra. Bakterían kemst þannig um munn og niður í meltingarveg og framleiðir eiturefni sem getur valdið blóðugum niðurgangi og í alvarlegum tilfellum nýrnabilun og blóðleysi (Hemolytic Uremic Syndrome).

Einstaklingar sem dvalist hafa undanfarnar 2–3 vikur í uppsveitum Árnessýslu (Bláskógabyggð) og veikjast með blóðugum niðurgangi eru hvattir til að leita til læknis svo ganga megi úr skugga um hvort þeir hafi sýkst af ofangreindri bakteríu.

sjá nánar: Tilkynning frá Sóttvarnalækni