Frá 1. júlí 2017 er "heimagisting" ekki starfsleyfisskyld

Heimagisting er samkvæmt skilgreiningu, gisting á lögheimili einstaklings eða einni annarri fasteign (t.d. sumarhúsi)  í hans eigu sem hann hefur persónuleg not af, þ.e. gisting á heimili þess sem býður upp á heimagistingu.

Sá sem hyggst bjóða upp á heimagistingu skal skrá starfsemi sína hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu eða á miðlægu vefsvæði þ.e. heimagisting.is

Frá og með 1. júlí nk. þarf heimagisting ekki að hafa starfsleyfi frá heilbrigðisnefnd.
Sjá nánar að um gistingu gilda ákvæði reglugerðar nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti, með síðari breytingum.

Reglugerð nr. 1277/2016.
Reglugerð nr. 941/2002.