Starfsleyfi til kynningar – Orkuveita Reykjavíkur vegna lagningu vegslóða, uppsetningu masturs fyrir vindmæli og rekstur díselrafstöðvar innan fjarsvæðis vatnsverndar á Mosfellsheiði, Sveitarfélaginu Ölfusi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

Orkuveita Reykjavíkur kt. 551298-3029, Bæjarháls 1, 110 Reykjavík vegna lagningu vegslóða, uppsetningu masturs fyrir vindmæli og rekstur díselrafstöðvar innan fjarsvæðis vatnsverndar á Mosfellsheiði, Sveitarfélaginu Ölfusi, sjá hér

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 6. maí  2025