Starfsleyfi til kynningar - Terra umhverfisþjónusta vegna gáma- og móttökusvæðis við Eldfellsveg í Vestmannaeyjum
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:
Terra umhverfisþjónusta, kt. 4102830349, vegna reksturs gáma- og móttökusvæðis, flutnings á úrgangi og móttöku á ökutækjum sem áformað er að farga, við Eldfellsveg, 900 Vestmannaeyjar, sjá hér.
Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 21. apríl 2025.