Tímabundið starfsleyfi til kynningar - Orka náttúrunnar ohf. vegna borunnar uppbótarvinnsluhola NJ-35 og NJ-36 á vinnslusvæði Nesjavallavirkjunar

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Orka náttúrunnar ohf., kt. 4711190830, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, vegna borunar uppbótar vinnsluhola NJ-35 og NJ-36 á vinnslusvæði Nesjavallavirkjunar, Nesjavöllum, 805 Selfossi á tímabilinu 1. desember 2024 – 1. desember 2025, sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 24. október 2024.