138. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands
haldinn föstudaginn 20. janúar 2012, kl. 13.00 að Austurvegi 56, Selfossi
Mætt: Gunnar Þorkelsson, formaður, Páll Stefánsson, Svanborg Egilsdóttir, Unnsteinn Eggertsson, Guðmundur Geir Gunnarsson, Valur Bogason (gegnum fjarfundabúnað) og Elsa Ingjaldsdóttir.
Pétur Skarphéðinsson boðaði forföll.
1) Starfsleyfi til kynningar og afgreiðslu
Nr |
Heiti |
Póstnúmar |
Starfsleyfi |
1 |
Grænmetismarkaður Selfossi – Aldís Sigfúsdóttir | 800 Selfoss | Nýtt leyfi |
2 |
Húsasmiðjan ehf – Blómaval | 800 Selfoss | Eigendaskipti |
3 |
Húsasmiðjan ehf – Hvolsvelli | 860 Hvolsvöllur | Eigendaskipti |
4 |
Húsasmiðjan ehf , Vestmannaeyjum | 900 Vestmannaeyjum | Eigendaskipti |
5 |
Sumarhús Álfasteinn – Þjóðólfshaga 25 | 850 Hella | Eigendaskipti |
6 |
Pólstjarnan ehf | 815 Þorlákshöfn | Nýtt leyfi |
7 |
Kaffi Krús – Selfoss veitingar ehf | 800 Selfoss | Eigendaskipti |
8 |
Ölfussport ehf | 815 Þorlákshöfn | Nýtt leyfi |
9 |
Ístak h.f. v/olíuafgreiðslu Búðarhálsi | 800 Selfoss | Nýtt leyfi |
10 |
Sláturhús Hellu hf – kjötvinnsla | 850 Hella | Nýtt leyfi |
11 |
JÁverk ehf | 800 Selfoss | Endurnýjun |
12 |
Olíuverslun Íslands v/ umboðssala | 815 Þorlákshöfn | Nýtt leyfi |
13 |
Stjörnunótt | 861 Hvolsvöllur | Eigendaskipti |
14 |
Guðjón og Margrét | 801 Selfoss | Nýtt leyfi |
15 |
Seylon | 800 Selfoss | Br. Á Húsnæði |
16 |
Himbrimi ehf. Hótel hekla | 801 Selfoss | Eigendaskipti |
17 | Katla Grill – veitingavagn | 880 Kirkjubæjarklaustur | Nýtt leyfi |
Allar starfsleyfisumsóknir samþykktar án athugasemda nema umsókn nr. 14. frestað.
2) Iðnaðarsalt í matvælaframleiðslu.
Elsa Ingjaldsdóttir greindi frá málinu og fór yfir minnispunkta HES vegna þessa. Almennar umræður urðu um málið.
3) Húsnæðismál.
Elsa Ingjaldsdóttir greindi frá fyrirhuguðum breytingum á húsnæði HES vegna flutnings menningarfulltrúa Suðurlands af Austurvegi 65 yfir á Austurveg 56. Jafnframt lögð fram tillaga að breytingum (teikningar) og yfirlit yfir skiptingu skrifstofukostnaðar og leigu HES á Austurvegi 56. Framlögð tillaga að breytingum innanhúss mun þrengja verulega að starfsmönnum HES.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands telur óásættanlegt að þrengja frekar að starfsmönnum HES, sem búa nú þegar við mikil þrengsli og felur framkvæmdastjóra að skoða skipti á núverandi húsnæði menningarfulltrúans og starfsemi HES í tímabundnu hagræðingarskyni.
4) Drög að bréfi HS til Umhverfisráðuneytis vegna tillagna UST.
Lögð fram drög að bréfi HS til Umhverfisráðuneytis er varðar tillögur Umhverfisstofnunar á breytingu á verkaskiptingu HES og UST.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands samþykkir innihald bréfsins og felur framkvæmdastjóra að senda bréfið.
5) Umhverfisstofnun, Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri og Gunnlaug Einarsdóttir, sviðstjóri.
Frestað, þar sem gestir gátu ekki komið sökum ófærðar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14.45
Gunnar Þorkelsson, form.
Páll Stefánsson
Valur Bogason
Svanborg Egilsdóttir
Unnsteinn Eggertsson
Guðmundur Geir Gunnarsson
Elsa Ingjaldsdóttir