Starfsleyfi til kynningar - Jarðefnaiðnaður ehf. vegna vinnslu jarðefna að Suðurvör 2 í Þorlákshöfn

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

  • Jarðefnaiðnaður ehf., kt. 510877 0209, Suðurvör 2, 815 Þorlákshöfn, vegna vinnslu jarðefna, allt að 150.000 m3 á ári, og viðgerðaraðstöðu eigin véla að Suðurvör 2, 815 Þorlákshöfn, sjá slóð hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 8. ágúst 2024.