Starfsleyfi til kynningar - Lavaconcept Iceland ehf. vegna efnistöku úr Fagradalsnámu E12 og efnisvinnslu við Uxafótarlæk
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:
- Lavaconcept Iceland ehf., kt. 4710131610, Víkurbraut 16, 870 Vík, vegna efnistöku í Fagradalsnámu E12 og efnisvinnslu við Uxafótarlæk, Fagradal 2, 871 Vík, sjá slóð hér.
Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 7. maí 2024.