Brennur stærri en 100 m3 eru skráningarskyldar
Þann 8. desember 2023 tók gildi breyting á reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Með breytingunni var brennum, stærri en 100 m3, bætt á listann yfir skráningarskyldan atvinnurekstur. Með þessari breytingu fellur fyrri auglýsingarskylda niður.
Jafnframt er minnt á að flugeldasýningar eru skráningarskyldar.
Starfsskilyrði fyrir brennur stærri en 100 m3 má finna hér: getfile.aspx (ust.is)
Hér er sótt um brennur stærri en 100 m3: https://island.is/leyfi-fyrir-staerri-brennu
Hér er sótt um flugeldasýningar: https://island.is/flugeldasyningar
Athugið að einnig þarf að sækja um leyfi fyrir brennum hjá sýslumanni og fyrir flugeldasýningum hjá lögreglustjóra.
Skráning atvinnurekstrar tekur gildi þegar:
- Skráning hefur farið fram
- Skráningargjald hefur verið greitt
- Rekstraraðili hefur fengið senda staðfestingu frá heilbrigðisnefnd
Frekari leiðbeiningar um hvaða reglur gilda um skráningarskyldan atvinnurekstur er að finna hér Leiðbeiningar og kynningarefni um skráningaskyldan atvinnurekstur . Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið hsl@hsl.is.