137. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands
haldinn föstudaginn
9. desember 2011, kl. 14.00 að Austurvegi 56, Selfossi
Mætt: Gunnar Þorkelsson, formaður, Páll Stefánsson, Svanborg Egilsdóttir, Unnsteinn Eggertsson, Guðmundur Geir Gunnarsson, Pétur Skarphéðinsson, Valur Bogason (gegnum fjarfundabúnað) og Elsa Ingjaldsdóttir.
Formaður seti fund og bauð gesti frá Orkuveitu Reykjavíkur, þau Hólmfríði Sigurðardóttur, umhverfisstjóra, og Einar Gunnlaugsson, yfirmann auðlinda- og rannsóknasviðs, velkomna.
1) Orkuveita Reykjavíkur v/Hellisheiðarvirkjunar.
Fulltrúar fyrirtækisins fóru yfir málefni Orkuveitunnar á Hellisheiði vegna vinnu HES við endurskoðun starfsleyfis virkjunarinnar.
Einar fór m.a. yfir almenn atriði eins og staðhætti, staðsetningu og fyrirkomulag virkjunarinnar. Gerði jafnframt grein fyrir niðurdælingu, neyðarlosun, dýpt hola, jarðfræði og vöktun.
Hólmfríður fór m.a. yfir dreifingu H2S frá virkjun og tengsl við reglugerðarákvæði. Fór jafnframt yfir mismunandi kröfur íslensku reglugerðarinnar og Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og hvaða þýðingu hinar ólíku kröfur þýða fyrir starfsemi OR.
Auk þess var einnig farið yfir sambærilega hluti er varða Nesjavallavirkjun.
Að endingu svöruðu þau fyrirspurnum nefndarmanna og spunnust almennar umræður um málið.
Þakkaði formaður Hólmfríði og Einari fyrir upplýsandi erindi og fyrir komuna. Véku þau síðan af fundi.
Ákveðið var að bíða með afgreiðslu á endurskoðun starfsleyfis meðan nefndin aflaði sér frekari upplýsinga enda starfsleyfi fyrir virkjuninni í fullu gildi.
2) Starfsleyfi til kynningar og afgreiðslu.
Nr |
Heiti |
Póstfang |
Starfsleyfi |
|
1 |
Ökuland ehf – ökuskóli – Gagnheiði 70 | 800 | Selfoss | Ný starfsemi |
2 |
Snyrtistofan Eva ehf | 800 | Selfoss | Ný starfsemi |
3 |
Ferðaþjónustan Hunkubökkum ehf. | 880 | Kirkjubæjarklaustur | Endurnýjun |
4 |
Grænmetispökkun Suðurlands ehf. | 851 | Hella | Endurnýjun |
5 |
Sumarhús Fjalli 2 – Valdimar Bjarnason | 800 | Selfoss | Ný starfsemi |
6 |
Árborg v/Sandvíkursalurinn | 800 | Selfoss | Br. á húsnæði |
7 |
Hagkaup | 104 | Selfoss | Ný starfsemi |
8 |
Hótel Hengill – Rekstrarfélagið Skeggi ehf. | 201 | Kópavogur | Endurnýjun |
9 |
Oddfellow,húsfélag | 900 | Vestmannaeyjar | Endurnýjun |
10 |
Ferðafélag Ísl.v/Landmannalaug | 108 | Reykjavík-8 | Endurnýjun |
11 |
Snyrtistofan Myrra ehf | 800 | Selfoss | Br. á húsnæði |
12 |
KB hár ehf | 815 | Þorlákshöfn | Ný starfsemi |
13 |
Lifandi Hús | 800 | Selfoss | Ný starfsemi |
14 |
Danssport | 800 | Selfoss | Br. á starfsemi |
Starfsleyfisumsóknir frá 1-10 samþykktar án athugasemda. Starfsleyfisumsókn nr. 11 samþykkt með fyrirvara um jákvæða afgreiðslu byggingafulltrúa og starfsleyfisumsóknir nr. 12-14 samþykktar með fyrirvara um jákvæða úttekt heilbrigðisfulltrúa.
3) Mál úr eftirliti.
a) Árborg v/leiksvæða.
Lagt fram til upplýsinga bréf HES, dags. 23. nóvember sl. er varðar úttekt á opnum leiksvæðum í sveitarfélaginu Árborg.
Framkvæmdastjóri gerði frekari grein fyrir málinu.
b) Árborg v/leikskóla.
Lagt fram bréf HES, dags. 2. desember sl. þar sem tilkynnt er um meðferð máls og mögulega beitingu þvingunarúrræða.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands staðfestir afgreiðslu HES á ofannefndu bréfi og felur starfsmönnum HES að fylgja málinu eftir.
c) Reykhúsið Útey – Til upplýsinga.
Framkvæmdastjóri greindi frá innköllun á taðreyktum silungi v/listeríu.
d) Kjörís – Til upplýsinga
Framkvæmdastjóri greindi frá innköllun og endurmerkingu á nokkrum vörum vegna vanmerkingar, þar sem vantaði að gera grein fyrir sojalesitíni í innihaldslýsingu.
e) Þykkvabæjar – Til upplýsinga.
Framkvæmdastjóri greindi frá innköllun og endurmerkingu á vöru vegna vanmerkinga þar sem vantaði að gera grein fyrir hveiti í innihaldslýsingu.
f) Örn ehf.
Lagt fram bréf HES, dags. 8. desember sl. þar sem tilkynnt er um meðferð máls vegna vangoldinna eftirlitsgjalda.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands staðfestir afgreiðslu HES á ofannefndu bréfi og felur starfsmönnum HES að fylgja málinu eftir.
g) Fasteignafélagið Bær.
Lagt fram bréf HES, dags. 8. desember sl. þar sem tilkynnt er um meðferð máls vegna vangoldinna eftirlitsgjalda.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands staðfestir afgreiðslu HES á ofannefndu bréfi og felur starfsmönnum HES að fylgja málinu eftir.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.30
Gunnar Þorkelsson, form. Páll Stefánsson Pétur Skarphéðinsson
Svanborg Egilsdóttir Unnsteinn Eggertsson Guðm. Geir Gunnarss.
Valur Bogason Elsa Ingjaldsdóttir