Tímabundið starfsleyfi til kynningar - Flugeldasýning á Rangárbökkum við Hellu 31. desember 2022
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:
- Rangárþing ytra, kt. 5206023050, Suðurlandsvegi 1-3, 850 Hella, vegna flugeldasýningar á Rangárbökkum við Hellu 31. desember 2022, sjá slóð hér.
Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 12. desember 2022.