Minni fráveitur - nýjar leiðbeiningar frá UST
Sjá slóð hér
Leiðbeiningar þessar eiga við hreinsun skólps fyrir 50 persónueiningar eða minna frá venjulegu húshaldi/gististöðum (ekki iðnaðarskólp). Þeim er ætlað að leiðbeina einstaklingum, hönnuðum, rekstraraðilum og heilbrigðiseftirlitum um þessar lausnir og fyrirkomulag varðandi kröfur til hreinsunar og staðsetningar á hreinsivirki. Auk þeirra sem starfa við þjónustu á hreinsivirkjum, svo sem sölu, uppsetningu, losun eða viðhald.
Í leiðbeiningunum er fjallað um þær lausnir sem helst eru notaðar hér á landi, þ.e. rotþrær og siturbeð, tilbúnar hreinsistöðvar og votlendi þótt notkun þeirra sé ekki útbreidd. Auk þess er t.d. fjallað um vatnssparandi salernislausnir sem henta vel við sérsöfnun svartvatns (salernisskólps).