Starfsleyfi til kynningar - Íbenholt ehf. vegna trésmíðaverkstæðis
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:
- Íbenholt ehf., kt. 671008 0570, Miðstræti 23, 900 Vestmannaeyjar, vegna trésmíðaverkstæðis að Miðstræti 23 í Vestmannaeyjum, sjá slóð hér.
Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is . Frestur til að gera athugasemdir er til og með 3. október 2022.