Haustfundur 2010
![13102010073](https://hsl.is/wp-content/uploads/2010/11/13102010073.jpg)
Haustfundur HES, Samtaka Heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi, Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar, með ráðuneytum, var haldinn daganna 13-14 október sl. að Hótel Loftleiðum.
Er haustfundur árlegur vettvangur heilbrigðisfulltrúa til að fræðast og samræma vinnu sína. Á fundinum eru haldin erindi og fróðleg innlegg frá ýmsum aðilum. Í ár var lögð áhersla á stjórnsýslu í opinberu eftirliti.
Fyrirlestrar og myndir af haustfundinum má nálgast hér af heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis.