Mikilvægi hreinlætis, þrifa og sótthreinsunar á tímum faraldurs
Hreinlæti og þrif á almannafæri
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands leggur áherslu á að almenn þrif séu fullnægjandi, ekki síst á þeim stöðum sem almenningur leitar til með þjónustu. Starfsfólk er hvatt til að sinna þrifum vel á sínum starfsstöðvum. Bent er á leiðbeiningar sem koma frá landlækni og heilbrigðisfólki varðandi sóttvarnir, almenna umgengni og þrif þ.e.:
- Gæta vel að hreinlæti, þvo hendur reglulega með volgu vatni og sápu og nota handspritt
- Forðast snertingu við augu, nef og munn
- Þrífa reglulega yfirborðsfleti t.d. hurðarhúna, handrið, lyftutakka, lyklaborð, ljósarofa o.fl.
- Sleppa handaböndum og faðmlögum, heilsa fremur með brosi 🙂
Mikilvægt er að farið sé að fyrirmælum Landlæknis, sjá slóð: https://www.landlaeknir.is/koronaveira/
Hver og einn þarf að huga sérstaklega að sínu nærumhverfi bæði á vinnustöðum og heimili með tilliti til þrifa og góðrar umgengni.
Hreinlæti í íþróttasölum
Á stöðum þar sem almenningur sækir þjónustu svo sem í íþrótta- og líkamsræktarsölum er nauðsynlegt að aðgengi að handþvottaaðstöðu og handspritti sé gott. Mikilvægt er að íþróttaiðkendur hugi vel að hreinlæti og að þeim sé bent á að:
- Nota handspritt í tækjasal
- Koma með sín eigin æfingahandklæði
- Þvo hendur mjög vel eftir æfingu
- Forðast snertingu við augu, nef og munn
Innra eftirlit og matvælaöryggi
Matvælafyrirtæki skulu starfrækja matvælaöryggiskerfi nú sem áður. Framkvæmd slíks kerfis á fullnægjandi hátt stuðlar að öryggi matvæla og um leið almennings. Nánari upplýsingar um innra eftirlit er að finna á vef Matvælastofnunar: https://www.mast.is/is/matvaelafyrirtaeki/innra-eftirlit-fyrirtaekja/almennt
Á vef Landlæknisembættisins eru almennar leiðbeiningar um sóttvarnir, umgengni og þrif – sjá slóð: https://www.landlaeknir.is/
Notkun hanska kemur ekki í staðinn fyrir handþvott
Þá vill Heilbrigðiseftirlit Suðurlands undirstrika mikilvægi handþvotta hjá öllum almenningi sem og starfsmönnum fyrirtækja og stofnana og minnir á að notkun hanska kemur ekki í staðinn fyrir góðan handþvott.