Starfsleyfi til kynningar - Búrfellsstöð 1 og 2
Starfsleyfisskilyrði eru til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun:
fyrir Landsvirkjun vegna Búrfellsstöðva 1 og 2, þ.e. stækkun vatnsaflsvirkjunar í Búrfelli, Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Skilyrðin liggja frammi til kynningar í einn mánuð hjá Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Árnesi, 801 Selfoss. Einnig er þau að finna á heimasíðunni hér.
Frestur til að skila inn athugasemdum við ofangreint er til 23. maí 2018. Skulu athugasemdirnar vera skriflegar og skilast á skrifstofuna að Austurvegi 65, Selfossi