85. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands, 25. apríl 2006
Fundargerð 85. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands haldinn þriðjudaginn 25. apríl 2006,kl. 13.00 að Austurvegi 56, Selfossi
Mætt: Jón Ó. Vilhjálmsson, Pétur Skarphéðinsson, Gunnar Þorkelsson, Elín Björg Jónsdóttir, Margrét Einarsdóttir, Birgir Þórðarson og Sigrún Guðmundsdóttir.
Bergur E. Ágústsson var í símasambandi.
1) Starfsleyfi til kynningar og afgreiðslu.
a) Starfsleyfi
Nr.
|
Nafn
|
Póstfang
|
Starfsleyfi
|
1 |
Golfskálinn Strönd |
851 Hella |
Endurnýjun |
2 |
Landnám IOGT í Galtalækjaskógi |
851 Hella |
Eigendaskipti |
3 |
Mosfell sf. |
850 Hella |
Endurnýjun |
4 |
Þvottahús Ölfuss ehf |
815 Þorlákshöfn |
Br. á húsnæði |
5 |
VIP Drífandi ehf (Hótel Eyjar) |
900 Vestmannaey |
Br. á starfsemi |
6 |
Frostmark ehf. |
800 Selfoss |
Endurnýjun |
7 |
Tjaldmiðst. Laugavatns – Glóðarsel ehf |
840 Laugarvatn |
Eigendaskipti |
8 |
Eimskipafél. Íslands ehf – v/Herjólfur |
104 Reykjavík |
Endurnýjun |
9 |
Hótel Rangá – Hallgerður ehf |
851 Hella |
Eigendaskipti |
10 |
Rangársel, Stokkalæk – Hallgerður ehf |
851 Hella |
Eigendaskipti |
11 |
Hveragerðisbær v/Vatnsveitu |
810 Hveragerði |
Endurnýjun |
12 |
Geysir shops ehf |
801 Selfoss |
Eigendaskipti |
13 |
Flóaskóli BS |
801 Selfoss |
Eigendaskipti |
14 |
J.G. Jaðar ehf |
301 Akranes |
Eigendaskipti |
15 |
Hótel Hekla – Ketilhóll ehf |
801 Selfoss |
Eigendaskipti |
16 |
Kaupás hf v/Krónunnar Tryggvatorgi |
110 Reykjavík |
Endurnýjun |
17 |
Klæðning ehf. stm.búðir Kolviðarh. |
200 Kópavogur |
Eigendaskipti |
18 |
Hvítasunnukirkja, Kirkjulækjarkoti |
861 Hvolsvöllur |
Endurnýjun |
19 |
Ferðaþjónustan Hunkubökkum |
880 Kirkjub.kl. |
Endurnýjun |
20 |
Stjörnugrís hf. |
801 Selfoss |
Eigendaskipti |
21 |
Seiðalón ehf. |
112 Reykjavík |
Ný starfsemi |
22 |
Landsvirkjun Sigöldustöð |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
23 |
Landsvirkjun Hrauneyjafossstöð |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
24 |
Landsvirkjun Sultartangastöð |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
25 |
Landsvirkjun Vatnsfellsstöð |
801 Selfoss |
Endurnýjun |
26 |
Trésmí. Erlendar Pétursson |
900 Vestmannaey |
Endurnýjun |
27 |
Reykjagarður hf. Ásmundarstöðum |
851 Hella |
Br. á starfsemi |
28 |
Matfugl ehf. Þórustöðum |
801 Selfoss |
Br. á starfsemi |
29 |
Jón Ögmundsson, Hjallakróki |
801 Selfoss |
Br. á starfsemi |
30 |
Ferðaþjónusta bænda Sólheimahjáleigu |
871 Vík |
Eigendaskipti |
31 |
Hrauneyjar ehf. Hálendismiðstöð |
851 Hella |
Endurnýjun |
32 |
Glitnir hf. v/ Höllin |
900 Vestmannaey |
Eigendaskipti |
33 |
Hressó |
900 Vestmannaey |
Endurnýjun |
34 |
Snyrti- og nuddstofa Lilju |
810 Hveragerði |
Br. á húsnæði |
Starfsleyfi nr. 1 – 26, 30 – 31 og 33 – 34 eru samþykkt án athugasemda. Nr. 27, 28, og 29 er frestað vegna athugasemda. Starfsleyfi nr. 32 verður ekki afgreitt fyrr en útbótaáætlun liggur fyrir.
b) Tóbakssöluleyfi
Nr.
|
Nafn
|
Póstfang
|
|
1 |
VIP Drífandi ehf (Hótel Eyjar) |
900 Vestm.eyjar |
Endurnýjun |
2 |
Tjaldmiðst. Laugarv.-Glóðarsel ehf |
840 Laugarvatn |
Eigendaskipti |
3 |
Hallgerður ehf. Hótel Rangá |
851 Hella |
Eigendaskipti |
4 |
Geysir shops ehf. |
801 Selfoss |
Eigendaskipti |
5 |
Kaupás hf. v/Krónan Tryggvatorgi |
800 Selfoss |
Endurnýjun |
Lögð fram til kynningar.
2) Samþykktir og gjaldskrár sveitarfélaga.
a) Gjaldskrá um sorphirðu í Hrunamannahreppi – Afgreiðslu frestað.
3) Umhverfismat – til kynningar.
a) Erindi Skipulagsstofnunar vegna borunar tveggja rannsóknarhola í Ölkelduhálsi. – Niðurstaða liggur fyrir að mat á umhverfisháhrifum skuli vera gert – lagt fram til kynningar.
b) Erindi Skipulagsstofnunar vegna borunar tveggja rannsóknarhola á Hellisheiði. – Niðurstaða að sé ekki háð mati – lagt fram til kynningar.
4) Skipulagsmál.
a) Breytingar á aðalskipulagi Ölfuss. Bolöldur.
Samþykkt án athugasemda.
b) Breytingar á aðalskipulagi GOG. Úlfljótsvatn.
Heilbrigðisnefnd telur að ekki komi fram nægilegar upplýsingar um málið í drögum að umhverfisáhrifum og telur þörf á ítarlegra mati.
c) Deiliskipulag íbúðarhúsa Þóroddstöðum 2, Ölfusi – kynning.
d) Deiliskipulag frístundabyggðar Torfastöðum, Bláskógabyggð – kynning $
e) Deiliskipulag frístundabyggðar Kílhrauni, Skeiða- og Gnúpv. – kynning
f) Drög að deiliskipulagi fyrir fráveitu Borg í Grímsnesi – kynning
5) Gangur eftirlits.
a) Rekstraryfirlit – Lagt fram til upplýsinga.
b) Reglubundið eftirlit og málaskrá – yfirlit lagt fram til upplýsinga.
6) Annað.
a) Fræðsluferð á Hellisheiði og til Orkuveitu Reykjavíkur – Jón Ó. Vilhjálmsson var með kynningu á fræðsluferð Heilbrigðisnefndar og starfsmanna HES vegna virkjunarframkvæmda Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði.
b) Skýrsla til UST vegna fæðubótaverkefnis – Sigrún Guðmundsdóttir kynnti þátttöku HES í eftirlitsverkefni um fæðubótarefni, sem er nýr málaflokkur í umsjá heilbrigðiseftirlits.
c) Höllin, Vestmannaeyjum.
Nýr rekstaraðili, Glitnir hf. og Sparisjóður Vestmannaeyja, hefur sótt um leyfi til reksturs hússins á grundvelli undanþágu Umhverfisráðuneytisins dags. 4. apríl 2006, frá ákvæðum um hávaðatakmarkanir skv. reglugerð nr. 933/1999 um hávaða. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands veitti bráðabirgðaleyfi til 1. maí, með tilvísun í áðurnefnda undanþágu Umhverfisráðuneytisins.
Í bráðabirgðastarfsleyfi var sérstaklega tiltekinn 2. liður skilyrða áðurnefndrar undanþágu, að rekstraraðili tilkynnti Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og nágrönnum Hallarinnar, "tímanlega og með óyggjandi hætti" um allar skemmtanir, sem mögulega geta farið yfir hávaðamörk sbr. áðurnefnd reglugerð nr. 933/1999 um hávaða. Engar slíkar tilynningar hafa borist. Ekki hefur borist áætlun um úrbætur, en frestur til þess rennur út 1. maí n.k.
Bókun HS:
"Með vísun í undanþágu Umhverfisráðherra dags. 4. apríl s.l. varðandi Höllina, Vestmannaeyjum telur Heilbrigðisnefnd Suðurlands grundvöll undanþágunar löngu brostin og mun ekki veita jákvæða umsögn varðandi málið sbr.7. grein laga nr. 7/1998 um hollustuhætti.
Bent er á að málefni Hallarinnar í Vestmannaeyjum hafa farið fyrir úrskurðarnefnd hollustuháttamála og þar verið staðfest að störf, valdsvið og þvingunaraðgerðir Heilbrigðisnefndar Suðurlands gagnvart Höllinni sé innan laga- og reglugerðarramma hennar. Samkvæmt 7. gr. ofangreindra laga skal ráðherra einungis veita undanþágu "þegar sérstaklega stendur á" undanþágan var fyrst gefin út 13. maí 2005 og gilti þá til 1. nóvember s.l. og telur Heilbrigðisnefnd Suðurlands að það sé löngu tímabært að fyrirtækið uppfylli kröfur til jafns á við aðra starfsemi.
Heilbrigðisnefnd Suðurlandsfer fram á að Umhverfisráðuneytið taki tillit til sjónarmiða nefndarinnar og framlengi ekki undanþágunni. Nefndin fer einnig fram á rökstuðning frá Umhverfisráðuneytinu um forsendur undanþágunnar."
d) Ásmundarstaðir – Athugasemdir við starfsleyfi, starfsmönnum Heilbrigðiseftirlits Suðurlands falið að svara þeim erindum.
e) Stefán Árnason, Jarðvísindastofnun HÍ. Vegna rannsókna á efnainnihaldi jarðhitavatns og grunnvatns á Suðurlandi.
– Heilbrigðisnefnd fagnar þessu verkefni og samþykkir að veita kr. 100.000,- til verkefnisins og hvetur SASS til að koma til móts við þessar þarfir. Einnig hvetur nefndin stærri fyrirtæki í matvæla- og orkuframleiðslu á Suðurlandi til að styrkja verkefnið.
Jón Ó. Vilhjálmsson Pétur Skarphéðinsson Gunnar Þorkelsson
Elín Björg Jónsdóttir Margrét Einarsdóttir Birgir Þórðarson
Sigrún Guðmundsdóttir