Uppfærðar leiðbeiningar um fráveitumál
Umhverfis- og orkustofnun hefur gefið út nýjar og uppfærðar leiðbeiningar sem tengjast fráveitumálum.
Um er að ræða:
- Leiðbeiningar um olíuskiljur
- Leiðbeiningar um litlar fráveitur
- Leiðbeiningar um eftirlitsmælingar og vöktun vegna fráveitu
Leiðbeiningarnar eru ætlaðar til stuðnings við hönnun, rekstur og eftirlit með fráveitum og eiga að endurspegla bestu þekkingu og aðferðir á hverjum tíma.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands vekur athygli á leiðbeiningunum og hvetur hlutaðeigandi aðila til að kynna sér þær.
Allar leiðbeiningarnar má einnig nálgast á vef Umhverfis- og orkustofnunar.
