Starfsleyfi til kynningar – Stíflulosun Suðurlands vegna söfnunar og flutnings á seyru og úrgangi úr hreinsibúnaði sem tengist fráveitu.

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi:

Stíflulosun Suðurlands kt. 4303140680, Hellismýri 14, 800 Selfoss, söfnunar og flutnings á seyru og úrgangi úr hreinsibúnaði sem tengist fráveitu. Sjá hér.

Athugasemdum skal skilað skriflega til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Austurvegi 65a, 800 Selfoss eða á netfangið hsl@hsl.is. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 21. maí 2026.