Undanþága veitt frá reglugerð um hávaða vegna jarðborunar í Hveragerðisbæ

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur veitt Veitum ohf. tímabundna undanþágu frá ákvæðum reglugerðar nr. 724/2008 um hávaða vegna jarðborunar í Hveragerðisbæ. Undanþágan heimilar að borun hitaveituholu fari fram allan sólarhringinn til loka janúar 2026 samkvæmt ákvörðun Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Sjá nánar hér.  

Starfsleyfi til kynningar – Black sand Hotels ehf vegna hreinsivirkis við Óseyrartanga

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi: Black Sand Hotel ehf., kt. 250660-4809, Klettagarðar 12, 104 Reykjavík vegna hreinsivirkis við Óseyratanga 2, 816 Ölfus. Sjá slóð hér. Athugasemdum skal skilað skriflega...