Fyrstu niðurstöður rannsóknar hópsýkingar á Rangárvöllum

Þann 7. ágúst síðastliðinn barst tilkynning til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands um að hópur einstaklinga sem höfðu gist á Rangárvöllum í lok júlí hefðu veikst af iðrasýkingu. Heilbrigðiseftirlitið fór samdægurs í eftirlitsheimsókn á gististaðinn og tók vatnssýni til rannsókna. Fljótlega barst staðfesting þess efnis að E. coli saurgerlar hefðu greinst í neysluvatni...