|
|
Af hverju hlífðarfatnaður Þegar þið skoðið þessar myndir þá skiljið þið vonandi betur afhverju við erum í alvöru göllum, notum bakbrynju og afhverju við fyrirlítum hálvita sem keyra um með hálsklút, í gallabuxum og með salatskál á höfðinu.
 Þessi lent í hlið á bíl ógallaður, án hjálms og dó.
 Þessi fór á lítilli ferð án hjálms og hægt er að sjá heila hans liggja við hlið hans
 Þessi væri lifandi ef hann væri ekki alveg svona vitlaus
 Gaman að leyfa kærustunni að prófa hjólið, hjálmlausa að sjálfsögðu.
 Sandalarnir björguðu því sem bjargað varð...
 Frjálslegar stellingar í frjálslegum fatnaði.
 Sjáið hvað ég er klár kall, þarf sko engann hlífðarfatnað - enda steindauður.
|
Hlífðarfatnaður Hlífðarfatnaður okkar er ekki skraut. Hannn samanstendur af; skóm sem eru sérhannaður til þess að verja okkur við fall. Hanskar sömuleiðis. Leðurgalli með fullum vörnum, bakbrynja og að lokum góður hjálmur Hver ökumaður ber ábyrgð á eigin akstri - félagið ber ekki ábyrgð á því hvernig menn aka, en gullna reglan þar er að fara ekki fram úr sjálfum sér. Það er ekkert kjánalegra en að sjá flottann racer með illa búnum ökumanni.
Við keyrum ekki um í gallabuxum og með salatskál á höfðinu - þeim sem finnst það flott þurfa á aðstoð að halda og alveg örugglega á læknisþjónustu/útfaraþjónustu að halda ef eitthvað kemur fyrir. Munið það þegar þið sjáið svona vitleysinga að benda mönnum góðfúslega á að þetta er ekki í lagi.
Smá fróðleikur til viðbótar.
1.Að ná augnsambandi Aldrei að gera ráð fyrir því að aðrir sjái þig.Alltaf að reyna ná augnsambandi við ökumenn sem gætu komið í veg fyrir þig.
2.Vertu vakandi í umferðinni. Þegar ökumenn bifreiða eða annara bifhjóla sjá þig koma gera þeir sér ekki alltaf grein fyrir hraðanum sem þú ert á. Ekki treysta á þá vertu vakandi og gerðu ráð fyrir því að þeir sjí þig ekki.
3.Varaðu þig á bílum sem eru að skipta um akbraut. Mörg slys verða vegna þess að hjólið sést ekki í speglum ökumanna þegar þeir skipta um akbraut,og oftar en ekki keyra þeir í veg fyrir þig.
4.Líttu aftur fyrir þig þegar þú skiptir um akbraut. Skoðaðu vel í speglana,og snúðu þeir til að lýta á "blindspottið" til að vera viss um að þú getir skipt um akbraut.Aðrir ökumenn eru ekki að fara hægja á sér til þess að hleypa þér inná.
5.Horfðu vel fram fyrir þig. Athugaðu vel aðstæður og varastu bleytu,olíu og aðra vökva,holur og drasl á veginum.
6.Farðu varlega í beygjurnar. Mörg slys verða í beygjum og hringtorgum. Þú gætir farið fyrir bíl eða út úr beygjunni ef hraðinn er of mikill,hægðu á þér. Horfðu fram fyrir þig og inn i beygjuna og staðsettu þig rétt inn í beygjuna.
7.Góður hjálmur bjargar. Góður hjálmur kemur í veg fyrir allt að 67% meiðsla og 29% dauðaslysa. Athugaðu hvort hjálmurinn sem þú ert að kaupa uppfylli allar öryggisstaðla. Forðastu að kaupa notaðan búnað hann gæti hafa lennt í tjóni þótt það sjáist ekki á honum.
8.Klæðist öryggisfatnaði sem er hannaður til aksturs bifhjóls. Öryggisfatnaður samanstendur af skóm,buxum,jakka,hönskum,hjálm og bakspelku.
|
Athugasemdir
White LiZard
| 29 Jul : 20:02
Gott framtak og segir allt sem segir þarf
Svara þessu
|
|
|
|
Þessi vefsíða er eign hsl.is. Öll afritun af henni er bönnuð nema með leyfi. Leyfi fæst yfirleitt aldrei.
Knúið af 8.is