Kennsla
1. Hópkeyrsla.

Í hópkeyrslu er margt að varast. Slönguakstur er það sem menn eiga að tileinka sér en hann er þannig að fremsti maður er vinstramegin á akrein, næsti maður er aftan við hann en hægra megin - þar næsti er vinstra megin og svo koll af kolli. Ef menn vilja láta vita af því að þeir ætli að skipta um akrein þá gera þeir það með því að gefa stefnuljós eða "dilla hjólin" fyrst sem merki. Aldrei er tekið framúr hægra megin í hópakstri og hafi menn þörf fyrir að vera að prjóna eða ek slíkt þá er það í lagi fyrir aftasta mann að gera slíkt en engan annan. Sé tekið fram úr bíl skal halda hraða talsvert eftir að fram úr bílnum er komið og færa sig strax vel hægra megin á veginn til þess að hjól sem kemur á eftir hafi gott svigrúm til þess að athafna sig. Sjái menn kaffibrúsakarl skal gefið merki með því að flassa afturljósum eða veifa putta upp í loft. Fíflaskapur í hópkeyrslu er mjög illa liðinn.

2. Tankslapp - hvað er það og hvernig bregst ég við því?
Taknslapp er þegar það kemur högg á framdekkið að stýrið lemst til og frá með miklum látum. Til þess að ná valdi á hjólinu er lykilatriði að bremsa hjólinu alls ekki - þess í stað gefa hjólinu hressilega inn. Við það fer þunginn af dekkinu og þú nærð aftur vald á hjólinu. Stýrisdempari dregur mikið úr hættunni á þessu en útilokar það samt ekki.

3. Það er einnig góð regla og þá á þetta sérstaklega við um kraftmikil hjóla ef að hjólið byrjar að "prjóna" að stíga varlega á afturbremsu, þetta á við ef að þið eruð á, guð hjálpi okkur, hraða úti á vegum og hjólið lendir í svokölluðu "djömpi" á veginum, ef ekkert er gert og gjöfinni haldið þá getur vindurinn náð undir hjólið og yfirprjón getur átt sér stað. Reyndar er mjög gott að venja sig á að vera alltaf með fótinn á afturbremsunni ef menn eru að leika sér að því að prjóna til þess að geta komið í veg fyrir yfirprjón.

4. Ef hjólið er að dragast út úr beygju. Ekki nota frambremsuna ef þér finnst hjólið vera að dragast útúr beygju. Menn geta t.d. notað öfugstyringu til að láta það detta inní beygjuna. (öfugstýring er það þegar tekið er á stýrinu með handafli á móti þeirri átt sem þú vilt að hjólið fari í - ef þú vilt beygja til hægri þá tekur þú í stýrið til vinstri - þetta gerist vegna lengri radíusar á dekkinu ef því er stýrt gegn þeirri stefnu sem þú vilt að hjólið fari í) Einnig er gott að nota afturbremsuna varlega.

5. Slide. Það er einnig góð regla ef að afturdekkið byrjar að skrika til þegar lagt er á hjólið í beygju að slaka EKKI á gjöfinni heldur að reyna að beygja á móti með svokallaðri öfugstýring halda sama halla á hjólinu og klára spólið út úr beygjunni rétta síðan hjólið af og hlæja að öllu saman þegar hjartslátturinn er kominn niður. Ef gjöfinni er sleppt undir þessum kringumstæðum að þá getur hugsanlega átt sér stað svokallað "hæsæt" - þá rennur afturdekkið til eins og að ofan er nefnt og síðan nær það gripi og afturdemparinn skutlar ökumanni af. Menn hafa oft séð þetta sem horfa á GP

6. Ef þú dettur. Haltu höndum að þér og reyndu aldrei að spyrna við fótum. Það er betra að brenna en að brotna.


Nýliðar: Hvað ber að varast?
Fyrir þá sem ekki hafa mikla reynslu eða enga af hjólum þá er ansi margt að varast sem menn fá því miður ekki mikla kennslu í í ökuskólum.
Hvít máluð strik á vegi geta verið stórhættuleg, sérstaklega í bleytu. Aldrei skal bremsa hjóli á slíkri línu.
Hafa skal auga með járnlokum á vegi en þau geta verið mjög sleip.


Kennslumyndbönd.

Clean your Motorcycle - Part 1
http://www.youtube.com/watch?v=HREqf4wIukA

Clean your Motorcycle - Part 2
http://www.youtube.com/watch?v=5iJ5WDHk_N8&feature=related

Clean your Motorcycle - Part 3
http://www.youtube.com/watch?v=bUh93do88II&feature=related

Clean your Motorcycle - Part 4
http://www.youtube.com/watch?v=0K_ms8kCysk&feature=related

Clean your Motorcycle - Part 5 - See how it looks now!
http://www.youtube.com/watch?v=JjHwB7dsi-0&feature=related

Working on the motorcycle
http://www.youtube.com/watch?v=PF-SVRtW74c&feature=related

Motorcycle Rear Wheel - Installation and Chain Adjustment
http://www.youtube.com/watch?v=WPzveH80rrY&feature=related

How to put on a chain (complete version)
http://www.youtube.com/watch?v=aUaS0MBa_3Q&feature=related

How to lube your clutch cable part 1 NEW
http://www.youtube.com/watch?v=DKO1FF7EFdI

How to lube a clutch cable part 2 NEW
http://www.youtube.com/watch?v=TFMVlQRrBDE

How to change your coolant.
http://www.youtube.com/watch?v=-gkBf30lXPY

How to change your brake pads NEW
http://www.youtube.com/watch?v=N6UaxIE_N8g

How to adjust your throttle cable
http://www.youtube.com/watch?v=_NGz3Fw9s0g




Þessi vefsíða er eign hsl.is. Öll afritun af henni er bönnuð nema með leyfi. Leyfi fæst yfirleitt aldrei.

Knúið af 8.is