Meðlimir HSL sáu nýtt táknmáli hjá Lögreglunni. Þar sem enginn meðlimur hefur fengið slíkt merki frá Lögreglu áður né gat flett upp merkingu þess í táknmálsbókum viljum við hreinlega spyrja, Árni hvað þýðir þetta merki hjá ykkur. Við vitum hvað Bush meinti en hvað meinið þið.
Okkar tilgáta er sú að þetta þýði, ,,Hey þú, flott hjól"
Þann 1. maí hefur um árabil verið haldin forvarnardagur Snigla með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar og á sama tíma vekja athygli á málstað okkar en fyrir alþingi liggur frumvarp til nýrra umferðarlaga, þar sem lítið tillit er tekið til athugasemda mótorhjólamanna. Safnast verður saman á Laugaveginum frá klukkan 10:30, hann fylltur af mótorhjólum upp úr öllu (Laugarvegur verður lokaður umferð á meðan) Keyrslan sjálf leggur af stað 11:30 niður Bankastræti og þaðan um Vonarstræti milli alþingis og ráðhúss Reykjavíkur, þar sem ætlunin er að láta aðeins heyrast í hjólunum og / eða flauta til að vekja athygli á málstað okkar. Leiðin liggur svo um Hringbraut, Bústaðaveg, Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut áður en keyrslan endar í Kauptúni gengt IKEA.
Aksturslýsing: Fyrstu hjólin munu safnast saman við mót Bankastrætis og Laugavegar og þannig mynda röð eftir Laugaveginum. Búist er við á milli 600-1000 mótorhjólum svo að ef það fer að teygjast á hópnum er hægt að beina nokkrum hjólum upp á Skólavörðustíg. Mæting hjólanna er á milli 10:30 og 11:15 og mun keyrslan renna af stað stundvíslega kl 11:30. Ekið verður niður Bankastrætið og beygt til vinstri Lækjargötuna og svo til hægri inn Vonarstrætið. Ekin er Suðurgatan til vinstri og eftir henni að hringtorginu á Hringbraut sem verur lokað tímabundið. Hringbrautin er ekin að Bústaðavegi og Bústaðavegur að Kringlumýrarbraut. Kringlumýrarbraut er ekin að brúnni á Arnarneshæð þar sem ekið er til vinstri eftir Arnarnesvegi gegnum Garðabæ að nýju Reykjanesbrautinni. Loks er ekið eftir Reykjanesbrautinni að slaufunni við kauptún og endar keyrslan fyrir utan KauptúnÁrekstur mótorhjólsUm kl 13:00 verður mótorhjól látið falla úr 10 metra hæð til að líkja eftir árekstri mótorhjóls við fastan hlut á um það bil 50 km/klst. Fallið ætti að sýna vel höggið við árekstur mótorhjóls.Hjólið verður til sýnis eftir „áreksturinn“ á sýningunni Burnout 2010 og „droppið“ verður myndað á high speed video vélar að hætti Mythbusters. Íslandsmeistaramótið í hjólafimi - vegleg verðlaunKlukkan 14:00 verður haldið Íslandsmeistaramót í hjólafimi. Keppt verður í tímamældri þrautabraut, þar sem úrslitin ráðast á tíma og tækni, en refsistig verða gefin fyrir villur í brautinni. Keppt verður á 125cc hjólum sem verða á svæðinu til að tryggja jafnræði. Verðlaunin eru ekki af verri endanum 1. Verðlaun – 60.000 kr. Bensín úttekt frá Orkunni2. Verðlaun – Hjálmur frá Suzuki umboðinu3. Verðlaun – 20.000 kr. Gjafabréf frá IKEAStigahæsta kona – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni Stigahæsti karl – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunniHægt er að skrá sig til keppni með því að senda póst á 1831@sniglar.is eða á staðnum fyrir keppni. Skilyrði fyri þátttöku er að vera með mótorhjólapróf. SýningDagana 30. apríl til 2. maí verður haldin Burnouthelgin 2010 sem er samstarfsverkefni Snigla, Kvartmíluklúbbsinns og BÍKR. Burnouthelgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautarrallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á Samskipasvæðinu við Holtagarða. Á sýningunni verða sýnd um 200 tæki, sportbílar, kvartmílutæki og þar af um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.Gamalt og sérstakt er markmið Snigla með mótorhjólahluta sýningarinnar en mótorhjól verða sýnd á um 2500 fermetrum og markmiðið að draga fram bæði gömul og sérstök mótorhjól. Á sýningunni verða margir fallegir gripir sem sumir hverjir hafa ekki verið sýndir áður svo sem Hendeson 1918 gert upp af Grími Jónssini. Ýrr í Tatoo bike verður með Airbrush á sýningunni og sprautar og selur boli. Einnig verða hjól sem hafa verið skreytt með Airbrush á sýningunni. Kynning verður á Mótorhjólasafni Íslands og margir gripir safnsins á svæðinu.Innkoma Snigla af þessari sýningu mun öll renna til Mótorhjólasafns íslands (www.motorhjolasafn.is) og forvarnarverkefna á vegum umferðarnefndar samtakanna. Umferðarnefnd mun meðal annars dreifa límmiðum með áletruninni „Sérðu mótorhjól? – Líttu aftur!“ til að setja í bílrúður á sýningunni.Ef þú hefur áhuga á að sýna hjól á sýningunni, hafðu samband við Berg í 1831@sniglar.isBiker BallEftir að hafa hjólað frá okkur mest allt vit í hópkeyrslunni um daginn þá ætlum við að skemmta frá okkur því viti sem eftir er að kvöldi 1. maí á Players Kópavogi. Rokk/blues bandið Síðasti Séns leikur fyrir dönsum og djammi með DJ Mikkólf sér til halds og trausts.
Miðaverði hefur verið stillt í hóf og inn kostar litlar 1500 krónur íslenskar. Ekki þýðir að borga með erlendum gjaldeyri, við komust hvort eð er ekkert út til að eyða honum. Bandið samanstendur af þaulreyndum djammhundum sem marga fjöruna hafa sopið og DJ Mikkólfur hefur sopið þær tvær eða þrjár, enda fjöru áhuga maður mikill.
Til eru 3 tegundir hjólamanna. Þeir sem eiga eftir að krassa,þeir sem eru búnir að krassa og svo Haffman og Atliman. The crashking crashed another bike
jÁ meinar... soldið langt síðan þú varst í skóla ? Spurning um að þú sækir um í Iðnskólanum á Akureyri, Frikkinn ætti að geta aðstoðað þig við að fá inngöngu etc...